Fræðsluráð

267. fundur 19. nóvember 2026 kl. 10:00 - 12:10 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Dagrún Kristinsdóttir formaður
  • Jóhanna Maj Júlíusdóttir varaformaður
  • Ragnar Bragi Ægisson aðalmaður
  • Kolfinna Rún Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Andri Steinn Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá
Formaður kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram. Guðný Kristín Guðnadóttir mætti til fundar kl. 10:01.

1.Skóladagatal leikskóla 2026-2027

Málsnúmer 2601071Vakta málsnúmer

Fræðsluráð samþykkir samróma að halda fyrirkomulagi óbreyttu um starfsdaga í upphafi fyrsta mánudags í mánuði. Ekki kom fram afgerandi afstaða foreldra til fyrirkomulagsins í könnun sem lögð var fyrir þá, en mjög afgerandi afstaða skólastjórnenda og starfsmanna leikskólans.
Guðný Kristín vék af fundi kl. 10:10
Harpa Rakel Hallgrímsdóttir, Eydís Bára Jóhannsdóttir og Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir mættu til fundar kl. 10:20

2.Tillaga um styttingu vinnuviku kennara 2026-2027

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Farið yfir tillögu skólastjórnenda um fyrirkomulag styttingar vinnuviku kennara.
Fræðsluráð gerir ekki athugasemdir við fyrirkomulag styttingar vinnuviku kennara.

3.Innra skipulag húsnæðis grunnskóla

Málsnúmer 2611051Vakta málsnúmer

Farið yfir tillögur skólastjórnenda vegna aðkallandi breytinga í kennslu og stoðþjónustu.
Fræðsluráð leggur áherslu á að farið verði í umbeðnar framkvæmdir sem fyrst. Fræðsluráð felur sviðsstjóra að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 og leggja fyrir umhverfis, veitu og framkvæmdaráð.
Harpa Rakel Hallgrímsdóttir, Eydís Bára Jóhannsdóttir og Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir véku af fundi kl. 10:50

4.Útboð á skólaakstri 2027

Málsnúmer 2611026Vakta málsnúmer

Farið yfir núverandi fyrirkomulag og álitamál vegna fyrirhugaðs útboðs. Umræður.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að leggja fram áætlun um nemendafjölda á leiðum næstu fjögur árin fyrir næsta fund.

5.Útboð á mötuneytisþjónustu 2027

Málsnúmer 2611027Vakta málsnúmer

Farið yfir núverandi fyrirkomulag og álitamál vegna fyrirhugaðs útboðs. Umræður.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að afla frekari gagna vegna undirbúnings útboðs á mötuneytisþjónustu.

6.PISA 2025

Málsnúmer 2609023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Sviðsstjóra falið að kalla eftir niðurstöðum fyrir Húnaþing vestra sérstaklega.

7.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2026

Fundi slitið - kl. 12:10.

Var efnið á síðunni hjálplegt?