Byggðarráð

1278. fundur 26. maí 2026 kl. 08:00 - 08:21 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605042Vakta málsnúmer

Fyrir hönd framkvæmdaráðs leggur sveitarstjóri fram tillögu að viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmda á lóð Grunnskóla Húnaþings vestra.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Eignasjóður
Grunnskóli, endurbætur skólalóð




kr. 20.000.000

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Framkvæmdir við endurbætur á skólalóð sveitarfélagsins voru boðnar út á árinu. Það tilboð sem barst gerir ráð fyrir að ljúka framkvæmdinni að fullu á árinu 2026.

Til þess að unnt sé að ljúka verkinu á þessu ári er óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 20.000.000.

Í gildandi fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að hluti framkvæmdarinnar færi fram á árinu 2027 og voru þar áætlaðar kr. 10.000.000 til verkefnisins. Verði þessi viðauki samþykktur mun framkvæmdinni ljúka á árinu 2026 og því verður ekki þörf á að nýta þær fjárheimildir sem áætlaðar voru fyrir árið 2027.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.

2.Skólalóð - Frágangur og endurbætur

Málsnúmer 2601075Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða útboðs framkvæmda við skólalóð Grunnskóla Húnaþings vestra.
Eitt tilboð barst:
Vogaklettur ehf., kr. 69.896.000.-

Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboðinu í samræmi við viðauka þann sem samþykktur var í fyrsta dagskrárlið.

3.Þakviðgerðir - Bjarnaborg

Málsnúmer 2601072Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar vegna þakviðgerðar á Bjarnaborg, Reykjaskóla.
Þrjú tilboð bárust:

Hvammstak ehf., kr. 35.704.060.-
HFA smíði ehf., kr. 39.526.235.-
Tveir smiðir ehf., kr. 41.991.435.-

Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda.

Fundi slitið - kl. 08:21.

Var efnið á síðunni hjálplegt?