Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605042

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1278. fundur - 26.05.2026

Fyrir hönd framkvæmdaráðs leggur sveitarstjóri fram tillögu að viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmda á lóð Grunnskóla Húnaþings vestra.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Eignasjóður
Grunnskóli, endurbætur skólalóð




kr. 20.000.000

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Framkvæmdir við endurbætur á skólalóð sveitarfélagsins voru boðnar út á árinu. Það tilboð sem barst gerir ráð fyrir að ljúka framkvæmdinni að fullu á árinu 2026.

Til þess að unnt sé að ljúka verkinu á þessu ári er óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 20.000.000.

Í gildandi fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að hluti framkvæmdarinnar færi fram á árinu 2027 og voru þar áætlaðar kr. 10.000.000 til verkefnisins. Verði þessi viðauki samþykktur mun framkvæmdinni ljúka á árinu 2026 og því verður ekki þörf á að nýta þær fjárheimildir sem áætlaðar voru fyrir árið 2027.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.

Var efnið á síðunni hjálplegt?