Styrkumsóknir vegna ársins 2022

Styrkumsóknir vegna ársins 2022

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022. Félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra er hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að fylla út þar til gert eyðublað og senda ásamt fylgigögnum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is eigi síðar en 10. september nk. Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Húnaþings vestra undir stjórnsýsla/eyðublöð eða HÉR
Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem Húnaþing vestra veitti styrk til á árinu 2020 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun styrksins.

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,

sveitarstjóri

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?