Frekari niðurstöður rannsókna í Ráðhúsi

Barkarstaðarskógur, mynd Árborg Ragnarsdóttir.
Barkarstaðarskógur, mynd Árborg Ragnarsdóttir.

Nú liggja fyrir frekari niðurstöður rannsókna á innra byrði ráðhússins sem unnar voru af Ferli verkfræðistofu. Tekin voru bæði stroksýni og efnissýni á nokkrum stöðum á öllum hæðum hússins. Niðurstöður þeirra leiða í ljós að ástand hússins er mun verra en talið var. Meðal úrbóta sem lagðar eru til má nefna skoðun á drenlögnum í kringum húsið, útskipti allra glugga, ítarleg yfirferð þaks og tengdra byggingarhluta, yfirferð allra lagna hússins með tilliti til endurnýjunar, þétting sprungna á útveggjun og skoðun á botnplötu. Í framhaldi af þessum athugunum verður unnt að kostnaðarmeta framkvæmdir sem ráðast þarf í til að gera húsið nothæft að nýju. Minnisblað með niðurstöðum beggja athugana sem gerðar hafa verið er að finna hér.

Í ljósi framangreinds hefur verið tekin ákvörðun um að loka húsinu alfarið frá og með deginum í dag að telja. Ekki er forsvaranlegt að setja fólk, starfsmenn né gesti, í þær aðstæður sem í húsinu eru. Von er á sérfræðingum á miðvikudag sem munu hreinsa tölvubúnað starfsmanna og hann verður í framhaldinu fluttur í Félagsheimilið. Gert er ráð fyrir að sú aðstaða verði opnuð nk. fimmtudag.

Afgreiðsla ráðhússins verður því lokuð það sem af er mánudegi 12. október sem og þriðjudag og miðvikudag 13. og 14. október. Þessa daga verður svarað í síma frá kl. 10-12 í aðalnúmeri, 455-2400, og unnt verður að ná í starfsmenn í farsíma þeirra.

Um leið og kostnaðarmat liggur fyrir verður haldinn íbúafundur til að fara ítarlega yfir málið og næstu skref.

Við þökkum sýndan skilning á þessari erfiðu stöðu sem upp er komin.

Nánari upplýsingar veitir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri, sími: 862 1340

Var efnið á síðunni hjálplegt?