Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014–2026 – Skrúðvangur á Laugarbakka

Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014–2026 – Skrúðvangur á Laugarbakka

Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar

Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014–2026 – Skrúðvangur á Laugarbakka

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á 403. fundi sínum þann 13. maí 2026 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014–2026 vegna Skrúðvangs á Laugarbakka, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér afmörkun svæðis fyrir verslun og þjónustu, VÞ-3 Skrúðvangur, um 0,6 ha að stærð, auk stækkunar svæðis fyrir gróðurstöð, SL-1, úr 3,32 ha í 3,99 ha. Markmið breytingarinnar er að staðfesta og afmarka betur þá ferðaþjónustu og þjónustustarfsemi sem þróast hefur á svæðinu á undanförnum árum.

Sveitarstjórn telur breytinguna óverulega þar sem hún víkur ekki verulega frá meginstefnu gildandi aðalskipulags, hefur ekki áhrif á stórt svæði og er ekki talin hafa veruleg áhrif á einstaka aðila eða aðliggjandi landnotkun.

Tillagan verður send Skipulagsstofnun til staðfestingar í samræmi við ákvæði skipulagslaga.

Hér má sjá uppdrátt af breytingunni

Skipulagsfulltrúi Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?