Íbúafundur á Borðeyri

Íbúafundur á Borðeyri

Á dögunum skilaði starfshópur um eignir, jarðir og lendur í eigu Húnaþings vestra af sér tillögum. Meðal annars lagði hópurinn til að skólahúsnæðið á Borðeyri yrði boðið til sölu eða leigu með eflingu búsetu og atvinnu á svæðinu í huga. Til að ræða þessa tillögu er boðað til íbúafundar á Borðeyri þar sem farið verður yfir möguleika og kallað eftir hugmyndum heimamanna um hugsanlega ráðstöfun hússins.

Fundurin verður haldinn í skólahúsinu á Borðeyri þann 9. janúar kl. 20. Öll hjartanlega velkomin.

Dagskrá:

1. Hugmynd starfshópsins kynnt.

2. Umræður.

Var efnið á síðunni hjálplegt?