FORKYNNING deiliskipulagstillögu fyrir hluta jarðarinnar Flatnefsstaðir á Vatnsnesi.

FORKYNNING deiliskipulagstillögu fyrir hluta jarðarinnar Flatnefsstaðir á Vatnsnesi.

Selasetur Íslands hefur látið vinna deiliskipulagstillögu fyrir nýjan sela- og náttúruskoðunarstað á Flatnefsstöðum. Skipulagssvæðið er um 90 ha að flatarmáli. Skipulagsgögnin samanstanda af tveimur skipulagsuppdráttum og greinargerð frá Landslagi ehf. ásamt fornleifaskýrslu.
Skipulagsgögnin hanga uppi í þjónustuandyrri ráðhúsins, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga til 17. október nk. og geta hagsmunaaðilar og allir þeir sem vilja kynna sér gögn skipulagsins skoðað þau þar. Ábendingar verða að hafa borist fyrir 18. október 2018 á netfangið skrifstofa@hunathing.is.  

Gögnin eru einnig aðgengileg hér;

Skipulagsuppdráttur bl1.
Skipulagsuppdráttur bl2.
Greinagerð
Fornleifaskýrsla

Sveitarstjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?