Dagbók sveitarstjóra

Dagbók sveitarstjóra

Við kynnum nýjan efnisflokk á heimasíðunni - Dagbók sveitarstjóra. Þar mun Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri, birta færslur reglulega og fara yfir það sem efst er á baugi hverju sinni. Er þetta liður í aukinni upplýsingamiðlun en eins og segir í fyrstu færslunni hefur Unnur einsett sér að  veita sem mestar upplýsingar um þau verkefni sem eru á borði sveitarstjóra hverju sinni. Eðlilega eru sum mál þess eðlis að ekki er hægt að fjalla um þau en áhersla verður lögð á að deila þeim sem hægt er að fjalla um. Framsetning pistlanna verður breytileg, stundum verður um samfelldan texta að ræða en í einhverjum tilfellum upptalningu á verkefnum og jafnvel í öðrum tilfellum aðeins myndræn framsetning.

Fyrstu dagbókarfærsluna er að finna hér.

Var efnið á síðunni hjálplegt?