Auglýsing um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Melstaðar í Miðfirði
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 13.maí 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi þjónustulóðar í landi Melstaðar í Miðfirði, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verður auglýst frá 10. júní til og með 24.júlí 2026.
Tillagan tekur til breytingar á deiliskipulagi þjónustulóðar í landi Melstaðar, landnr. L144137, sem staðfest var 26. júní 2013. Skipulagssvæðið er um 2 km suðvestan við Laugarbakka og afmarkast af Hringvegi nr. 1 til norðurs og Miðfjarðarvegi nr. 704 til austurs. Breytingin felur í sér tilfærslu skipulagsmarka, stækkun skipulagssvæðis og nýja og breytta skilmála.
Markmið skipulagsins er að skapa ramma um verslunar- og þjónustustarfsemi á 22.000 m² lóð, þar á meðal þjónustumiðstöð, eldsneytisafgreiðslu, hleðslustöðvar rafbíla, bílastæði og tengdan búnað. Gert er ráð fyrir byggingarreit þjónustuhúss allt að 665 m² hámarksbyggingarmagni og aðkomu frá Miðfjarðarvegi.
Samhliða skipulagsvinnunni hefur verið unnin náttúrufars- og mengunarvarnaúttekt. Þar kemur fram að svæðið er láglent með votlendi, tjörn og vistgerðum sem hafa hátt eða mjög hátt verndargildi. Helstu áhrif skipulagsins tengjast raski á votlendi og mögulegri mengunarhættu.
Í tillögunni eru settir skilmálar um mengunarvarnir, fráveitu, olíuskiljur, blágrænar ofanvatnslausnir, vöktun og mótvægisaðgerðir vegna röskunar á votlendi og dýralífi. Mótvægisaðgerðir felast m.a. í því að viðhalda eða endurskapa vatnsstöðu, rennslisleiðir og vistfræðileg gildi með mótun nýrrar tjarnar og votlendis austan Miðfjarðarvegar, í samráði við hlutaðeigandi aðila.
Tillagan og fylgigögn verða til sýnis á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, á auglýsingartíma. Gögnin verða einnig aðgengileg á vef sveitarfélagsins, www.hunathing.is, og í Skipulagsgáttinni, www.skipulagsgatt.is.
Nánari upplýsingar í síma 455-2400
Deiliskipulagsuppdrátt má sjá hér
Hér má sjá náttúrufars- og mengunarvarnaúttekt
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu berast eigi síðar en 24. júlí 2026 í gegnum Skipulagsgáttina eða skriflega til Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, merktar: „Melstaður í Miðfirði“.
Skipulags- og byggingafulltrúi Húnaþings vestra.