AUGLÝSING Deiliskipulag í Húnaþingi vestra, febrúar 2013

Deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu að Ósum á Vatnsnesi
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir allt að 390 m2 verslunar- og þjónustuhúsi á einni hæð með tilheyrandi bílastæðum. Deiliskipulagið var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Litlu-Borgar.
Deiliskipulagsbreytingin felst í aðlögun lóðamarka og aðkomu að lóðum, bætt er við þremur lóðum og byggingarskilmálum er breytt. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagsuppdrættir með greinargerðum liggja frammi á skrifstofu Húnaþings vestra frá 6. mars 2013 með athugasemdarfresti til og með 17. apríl 2013. Einnig má nálgast skipulagstillögurnar á heimasíðu Húnaþings vestra, www.hunathing.is Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5 eða á netfangið alla@hunathing.is merkt "deiliskipulag í Húnaþingi vestra, febrúar 2013". Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkja tillögurnar.

Ósar deiliskipulagsuppdráttur

Ósar fornleifaskráning

Litla-Borg deiliskipulagsuppdráttur

Hvammstangi 28. febrúar 2013
Skúli Þórðarson sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?