Vinnuskólinn 2026

Vinnuskóli Húnaþings vestra 2026 stendur til boða fyrir ungmenni sem eru að klára 8. bekk og eldri, sem lögheimili hafa í Húnaþingi vestra eða eiga foreldri með lögheimili í sveitarfélaginu.

Vinnutími mánudaga til fimmtudaga er frá kl. 8:30-12:00 og 13:00-16:00. Á föstudögum er vinnutími frá 8:30-12:00.

Verkbækistöð er í vinnuskólahúsinu að Norðurbraut 14 á Hvammstanga.

Aldur, laun og vinnutímabil 2026

Aldur: Ungmenni fædd árið 2012 (8. bekkur).
Laun: 968,8 kr. á tímann.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 5 vikur frá 8. júní - 10. júlí.

Aldur: Ungmenni fædd árið 2011 (9. bekkur).
Laun: 1.291,78 kr. á tímann.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 6 vikur frá 8. júní - 17. júlí.

Aldur: Ungmenni fædd árið 2010 (10. bekkur).
Laun: 2.099,15 kr. á tímann auk 13,04% orlofs.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 7 vikur frá 8. júní - 24. júlí.

Aldur: Ungmenni fædd árið 2009 og eldri.
Laun: 2.422 kr. á tímann auk 13,04% orlofs.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 8 vikur á tímabilinu 1. júní - 24. júlí.

Innritun er hafin og fylla forráðamenn út eyðublað HÉR, fyrir 22. maí.

Eftir að innritun lýkur verður valið í sláttuhóp og tekur valið mið af aldri og hæfni ungmenna. 

Hægt er að sækja um að fá að aðstoða á leikskólanum Ásgarði og merkja þarf sérstaklega við það í umsóknarferli. Ræðst það af ásókn hvernig sú aðstoð verður sett upp nákvæmlega og hvaða tími verður í boði fyrir hvern. Forgang hafa eldri ungmennin og/eða ungmenni með reynslu.

Mikilvægt er að í skráningu komi fram ef um ofnæmi, sérþarfir eða einhverskonar frákvik er að ræða, sem gott væri fyrir starfsfólk vinnuskólans að vita.

Frekari upplýsingar gefur Heiða Jack á umhverfi@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?