Starfshópur um opnunartíma leikskóla og grunnskóla.

5. fundur 09. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir formaður
  • Eydís Bára Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Rannvá Björk Þorleifsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Bára Sigurðardóttir aðalmaður
  • Þórunn Ýr Elíasdóttir aðalmaður
  • Guðný Kristín Guðnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá

1.Opnunartími leikskóla og grunnskóla í kjölfar kjarasamninga

Málsnúmer 2411049Vakta málsnúmer

Það sem helst kom fram í athugasemdum frá foreldrum í opnu samráði var að andstaða er bæði við að afnema akstursstyrki og að greitt verði fyrir korter fyrir og eftir opnunartíma frá 8:00 - 16:00. Starfshópurinn hvetur byggðarráð að taka til skoðunar að afnema ekki akstursstyrki við frekari afgreiðslu málsins. Jafnframt hvetur starfshópurinn byggðarráð til að breyta gjaldskrá leikskóla þannig að foreldrar geti óskað eftir vistun miðað við 30 mínútur í stað klukkustundar eins og kemur fram í einni athugasemdinni.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?