Skipulags- og umhverfisráð

384. fundur 05. mars 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Ingimar Sigurðsson formaður
  • Birkir Snær Gunnlaugsson varaformaður
  • Fríða Marý Halldórsdóttir aðalmaður
  • Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnussen skipulags- og byggingafulltrúi
  • Linda Sóley Guðmundsdóttir Fulltrúi á skipulags- og byggingadeild
Fundargerð ritaði: Linda Sóley Guðmundsdóttir
Dagskrá

1.Svæðisskipulag Vestfjarða

Málsnúmer 2602049Vakta málsnúmer

Óskað er eftir umsögn á tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða ásamt forsendum og umhverfismati hennar sem tekur til alls lands aðildarsveitarfélaga Fjórðungssambands Vestfirðinga, frá Brekkuá í Gilsfirði að vestan og austur að Stikuhálsi milli Bitru og Hrútafjarðar ásamt umhverfismatsskýrslu skv. 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Ráðið telur að tillagan hafi ekki í för með sér beinar skipulagslegar skuldbindingar né skerði hagsmuni Húnaþings vestra. Ráðið tekur þó fram að ytri mörk skipulagssvæðisins liggi að Hrútafirði (við Stikuháls) og að fyrirliggjandi umfjöllun um samgöngur/ferðaleiðir geti haft óbein tengsl við aðkomusvæði á mótum þjóðvega nr. 60 og 68 við hringveg nr. 1
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við tillöguna.

2.Hamarsbúð-br.á notkun

Málsnúmer 2602047Vakta málsnúmer

Umsókn um breytingu á notkun á Hamrsbúð á Vatnsnesi úr sumarbústaði í samkomustað.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á notkun Hamarsbúðar.

3.Vindorkuver í landi Sólheima, Dalabyggð
Álit um umhverfismat framkvæmdar

Málsnúmer 2407035Vakta málsnúmer

Lagt til kynningar um vindorkuver í landi Sólheima í Dalabyggð og fyrirliggjandi gögn vegna umhverfismats framkvæmdarinnar. Til grundvallar lágu m.a. álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat, ásamt svörum framkvæmdaraðila (Qair Ísland ehf.) við spurningum og frekari spurningum Skipulagsstofnunar. Málið var tekið til umræðu með hliðsjón af málsmeðferð, framkomnum umsögnum og skýringum/viðbrögðum sem bárust.

Málið lagt fram til kynningar, þ.e. álit Skipulagsstofnunar og fylgigögn/svör framkvæmdaraðila.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?