-
Skipulagsráð - 388
Skipulagsráð hefur tekið fyrir erindi um stækkun og breytta afmörkun lóðarinnar Ormsárgils, L207379, í landi Mela. Samkvæmt framlagðri merkjalýsingu og afstöðumynd, dags. 10. júní 2026, verður stærð lóðarinnar 6.605 m² og er stækkunin tekin úr landi Mela 3, L142219.
Skipulagsráð samþykkir erindið og leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki stækkun og breytta afmörkun lóðarinnar í samræmi við framlögð gögn. Skipulagsfulltrúa verði falið að annast áframhaldandi afgreiðslu málsins
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 388
Skipulagsráð hefur tekið til umfjöllunar framkomna athugasemd við grenndarkynnta breytingu á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðs göngustígs vestan við lóðir í hverfinu.
Ráðið tekur athugasemdina til greina, meðal annars hvað varðar áhrif fyrirhugaðrar legu göngustígsins á lóð nr. 8 og þær forsendur sem lóðarhafi hefur hafið framkvæmdir og frágang lóðarinnar samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Jafnframt telur ráðið að ekki hafi verið sýnt nægilega fram á að fyrirhuguð lega stígsins sé hagkvæmasti eða heppilegasti kosturinn, sérstaklega með hliðsjón af mögulegri legu nær lóð nr. 6, sem kann að hafa minni áhrif á aðliggjandi lóðir.
Með vísan til framkominnar athugasemdar og framangreindra sjónarmiða telur skipulagsráð að forsendur séu ekki til þess að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna eins og hún hefur verið kynnt. Skipulagsráð leggur því til við sveitarstjórn að framlagðri deiliskipulagsbreytingu verði hafnað.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 388
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að leita og afla eftirfarandi umsagna áður en málið verður tekið til endanlegrar afgreiðslu. Einnig er farið fram á leiðréttingu þar sem stærðir eru ekki í samræmi í gögnum.
Umsagnar Náttúruverndarstofnunar, Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs Húnaþings vestra, Umhverfis- og orkustofnunar, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, Fiskistofu, Minjastofnunar Íslands og umsagnar Vegagerðarinnar, .
Málið verður tekið að nýju til afgreiðslu þegar framangreindar umsagnir liggja fyrir. Ráðið vísar bókuninni til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Bókun fundar
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með þremur atkvæðum, en bætir landbúnaðarráði og fjallskiladeild Vatnsnesinga við sem umsagnaraðilum.
Bókunin í heild hljóðar því svo:
„Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að leita og afla eftirfarandi umsagna áður en málið verður tekið til endanlegrar afgreiðslu. Einnig er farið fram á leiðréttingu þar sem stærðir eru ekki í samræmi í gögnum. Afla skal umsagna frá Náttúruverndarstofnun, umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráði Húnaþings vestra, Umhverfis- og orkustofnun, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, Fiskistofu, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, landbúnaðarráði Húnaþings vestra og fjallskiladeild Vatnsnesinga. Málið verður tekið að nýju til afgreiðslu þegar framangreindar umsagnir liggja fyrir.“
-
Skipulagsráð - 388
Skipulagsráð tekur erindið til kynningar. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að hafa leiðbeiningar um áhrifamat fyrir vatnshlot til hliðsjónar við meðferð skipulags- og framkvæmdamála og kalla eftir viðeigandi mati frá framkvæmdaraðila þegar fyrirhuguð framkvæmd eða starfsemi kann að hafa áhrif á vatn.
-
Skipulagsráð - 388
Skipulagsráðið samþykkir að heimila afmarkaðar malbikunarframkvæmdir á núverandi aksturs- og athafnasvæði, enda teljist þær til viðhalds og endurbóta á núverandi yfirborði og feli ekki í sér breytingu á landnotkun, meginfyrirkomulagi svæðisins eða tengingum við þjóðveg.
Fyrirliggjandi gögn gera jafnframt ráð fyrir umfangsmeiri uppbyggingu á svæðinu, m.a. fjölgun hraðhleðslustæða og hleðslustöðva, raforkumannvirkjum og breytingum á aksturs- og umferðarfyrirkomulagi
Að mati ráðsins er sú heildaruppbygging þess eðlis að rétt sé að móta heildstæðar skipulagsforsendur fyrir svæðið með deiliskipulagi.
Ráðið fer því fram á að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við 37. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en ráðist verður í frekari uppbyggingu samkvæmt fyrirliggjandi framkvæmdaráformum. Ráðið telur með hliðsjón af umfangi fyrirhugaðrar uppbyggingar.
Skal deiliskipulagsgerð og frekari útfærsla sem snertir tengingar við þjóðveg og umferðaröryggi unnin í samráði við Vegagerðina, og umsagnar hennar aflað áður en endanleg afstaða er tekin til þeirra þátta framkvæmdarinnar.
Heimild samkvæmt þessari bókun tekur eingöngu til framangreindra malbikunarframkvæmda sem teljast til viðhalds. Heimildin felur ekki í sér samþykki fyrir öðrum þáttum fyrirhugaðrar uppbyggingar né framkvæmdaleyfi vegna þeirra. Að öðru leyti er afgreiðslu framkvæmdaráforma frestað þar til deiliskipulag hefur verið unnið og nauðsynlegt samráð við Vegagerðina farið fram.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
Byggðarráð fagnar jafnframt þeim áformum um uppbyggingu á svæðinu sem fram koma í fyrirliggjandi gögnum og telur fyrirhugaða uppbyggingu mikilvæga fyrir þjónustu og innviði í sveitarfélaginu. Ráðið hvetur framkvæmdaraðila til áframhaldandi uppbyggingar og góðs samstarfs við sveitarfélagið við framgang verkefnisins.
-
Skipulagsráð - 388
Skipulagsráðið samþykkir að heimila afmarkaðar malbikunarframkvæmdir á núverandi aksturs- og athafnasvæði, enda teljist þær til viðhalds og endurbóta á núverandi yfirborði og feli ekki í sér breytingu á landnotkun, meginfyrirkomulagi svæðisins eða tengingum við þjóðveg.
Fyrirliggjandi gögn gera jafnframt ráð fyrir umfangsmeiri uppbyggingu á svæðinu, m.a. fjölgun bílastæða og breytingum á aksturs- og umferðarfyrirkomulagi