Mál til umsagnar: Drög að reglugerð um heilsugæslu mál nr. 110/2026

Málsnúmer 2606088

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1282. fundur - 13.07.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá heilbrigðisráðuneytinu um mál nr. 110/2026 í samráðsgátt stjórnvalda, drög að reglugerð um heilsugæslu.
Samkvæmt íbúakönnun Vífils Karlssonar sem gerð var 2023 eru íbúar í Húnaþingi vestra þeir ánægðustu á landinu með heilbrigðisþjónustu í sínu sveitarfélagi. Gera má ráð fyrir að gott aðgengi að reyndum heimilislæknum sem búsettir eru á svæðinu ásamt framúrskarandi heilbrigðisstarfsfólki öðru eigi stóran þátt í þeirri ánægju. Mikilvægt er að standa vörð um þá þjónustu sem í boði er í sveitarfélaginu og viðhalda ánægju íbúa. Byggðarráð fær ekki séð að þær breytingar sem boðaðar eru í reglugerðardrögunum séu til þess fallnar. Einkum vill ráðið vekja athygli á því að skráning fólks hjá þverfaglegu teymi í stað heimilislæknis er allt öðruvísi í framkvæmd á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu þar sem aðgengi að sérfræðingum er mun meira en víðast hvar úti á landi. Ráðið telur að með þeirri breytingu sé ýtt undir lakari þjónustu á landsbyggðinni. Við það verður ekki unað.

Byggðarráð hvetur ráðherra til að taka til greina ábendingar reyndra heilsugæslulækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna sem fram koma í umsögnum um málið og endurskoða reglugerðardrögin í heild sinni.
Var efnið á síðunni hjálplegt?