Mál til umsagnar: Drög að reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu mál nr. 107/2026

Málsnúmer 2606073

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1282. fundur - 13.07.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá heilbrigðisráðuneytinu um mál nr. 107/2026 í samráðsgátt stjórnvalda, drög að reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu.
Byggðarráð Húnaþings vestra gerir í meginatriðum ekki athugasemdir við inntak reglugerðardraganna og markmið hennar. Ráðið vill hinsvegar benda á að rík auðkenningarkrafa getur komið í veg fyrir að viðkvæmasti notendahópurinn geti nýtt sér fjarheilbrigðisþjónustu. Vill ráðið þá einkum benda á þá sem nota fjarþjónustu í heimahúsum, svo sem eldri borgara, fólk með heilabilun, fólk með skerta hreyfigetu o.s.frv. Fyrir hluta þessara þjónustuþega getur auðkenning með rafrænum skilríkjum reynst þröskuldur sem erfitt er að komast yfir af ýmsum ástæðum. Ráðið tekur undir athugasemd þá sem fram kemur í umsögn Dala ehf. Þar sem segir:

„Reynslan af þeim lausnum sem þegar eru í notkun fyrir fjarinnlit sýnir að hagræðið og gæði þjónustunnar eru veruleg þegar fjarinnlit eru notuð í bland við hefðbundna heimaþjónustu. Sá ávinningur næst hins vegar aðeins ef notandinn kemst raunverulega inn í samtalið. Auðkenningarþröskuldur sem hentar vel í almennri fjarheilbrigðisþjónustu getur orðið að óyfirstíganlegri hindrun fyrir einmitt þann hóp sem fjarþjónustan á að styðja."

Byggðarráð vill jafnframt leggja áherslu á að fjarheilbrigðisþjónusta verði aldrei skilgreind sem sjálfgefinn eða fyrsti kostur við veitingu heilbrigðisþjónustu. Byggðarráð telur að meginreglan eigi ávallt að vera sú að einstaklingar eigi kost á þjónustu augliti til auglitis, óháð búsetu, en fjarþjónusta sé viðbót sem nýtt er þegar hún þjónar hagsmunum notandans. Sé þessari meginreglu ekki fylgt, er hætta á að íbúar landsbyggðarinnar búi við lakari aðgang að opinberri þjónustu en aðrir, og að stafræn þjónusta verði í reynd staðgengill fyrir þá nærþjónustu sem þeir eiga sama rétt á og aðrir landsmenn.

Stafrænar lausnir mega þannig aldrei verða réttlæting fyrir fækkun staðbundinna þjónustukosta eða veikingu heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Slík þróun myndi skapa tveggja þrepa heilbrigðiskerfi þar sem búseta ræður því hvort fólk á raunverulegan kost á þjónustu í persónu eða eingöngu í gegnum skjá.
Var efnið á síðunni hjálplegt?