Skipulagsráð - 287

Málsnúmer 2606009F

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1282. fundur - 13.07.2026

Fundargerð 287. fundar skipulagsráðs frá 1. júlí 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1282. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
Nína Axelsdóttir aðalmaður í skipulagsráði kynnti fundargerð.
Aðrir liðir og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .1 2605065 Erindisbréf nefnda og ráða
    Skipulagsráð - 287 Skipulagsráð tekur fyrir kynningu á erindisbréfi ráðsins og siðareglum kjörinna fulltrúa Húnaþings vestra og tekur erindisbréf ráðsins og siðareglur til eftirbreytni í störfum sínum.
  • .2 2606018 Br. ASK-Tengivirki í landi Reykja-skipulags-matslýsing
    Skipulagsráð - 287 Svæðið er í gildandi aðalskipulagi skilgreint sem landbúnaðarsvæði, en fyrirhuguð uppbygging kallar á að landnotkun verði breytt í iðnaðarsvæði. Samhliða aðalskipulagsbreytingu verður unnið nýtt deiliskipulag þar sem m.a. verður kveðið á um afmörkun lóða, byggingarreiti, aðkomu, lagnaleiðir, öryggissvæði, frágang og aðra skipulagsskilmála vegna mannvirkjanna.

    Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að auglýsa og kynna skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og spennistöð í landi Reykja við Laugarbakka.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .3 2605052 Strengvæðing í Hrútafirði - tilkynning um framkvæmd
    Skipulagsráð - 287 Fyrir liggur að framkvæmdaraðili hafi aflað nauðsynlegra umsagna og leyfa frá landeigendum, Vegagerðinni, Fiskistofu og Minjastofnun Íslands, eftir því sem við á.

    Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd, enda verði unnið í samræmi við framlagða tilkynningu og meðfylgjandi gögn.
    Bókun fundar Afgreiðsla skiplagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .4 2606078 Merkjalýsing, Staður - spennistöð
    Skipulagsráð - 287 Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsinguna og stofnun 20.m² lóðar úr landi Staðar, landnúmer L144048, undir spennistöð í Hrútafirði, samkvæmt framlagðri merkjalýsingu. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .5 2606077 Merkjalýsing, Víðigerð - spennistöð
    Skipulagsráð - 287 Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsingu vegna stofnunar 40 m² lóðar úr landi Auðunnarstaða, landnúmer L144596, undir spennistöð, samkvæmt framlagðri merkjalýsingu og meðfylgjandi uppdrætti. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .6 2605014 Umsókn um byggingarlóð
    Skipulagsráð - 287 Skipulagsráð tekur til umfjöllunar erindi sveitarstjórnar vegna beiðni Sjótækni ehf. um breytingu á deiliskipulagi við Hafnarbraut á Hvammstanga, í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu atvinnuhúsnæðis fyrir þaravinnslu á lóðunum Hafnarbraut 9 og 11.

    Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010, kalla eftir nauðsynlegum gögnum frá umsækjanda og undirbúa tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðisins til frekari umfjöllunar ráðsins.
  • .7 2606052 Bakkatún 9, ósk um afnotarétt
    Skipulagsráð - 287 Skipulagsráð hafnar erindinu. Ráðið telur ekki rétt að heimila nýtingu svæðisins sem bílastæði þar sem svæðið er samkvæmt fyrirliggjandi skipulagsgögnum ætlað fyrir göngustíg og hluta af samgöngu- og útivistartengingu innan svæðisins. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .8 2607001 DSK-Nestún-Hvammstanga
    Skipulagsráð - 287 Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að skipulagslýsingin verði auglýst og kynnt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnaraðilum, íbúum og öðrum hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum áður en tillaga að deiliskipulagi verður fullmótuð. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .9 2607002 Dsk-Borðeyri
    Skipulagsráð - 287 Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að skipulagslýsingin verði auglýst og kynnt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnaraðilum, íbúum og öðrum hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum áður en tillaga að deiliskipulagi verður fullmótuð. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?