Byggðarráð - 1278

Málsnúmer 2605001F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 404. fundur - 11.06.2026

Fundargerð 1278. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 404. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Örn Arnarson nýkjörinn formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1278 Lögð fram eftirfarandi tillaga:

    „Eignasjóður
    Grunnskóli, endurbætur skólalóð




    kr. 20.000.000

    Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

    Framkvæmdir við endurbætur á skólalóð sveitarfélagsins voru boðnar út á árinu. Það tilboð sem barst gerir ráð fyrir að ljúka framkvæmdinni að fullu á árinu 2026.

    Til þess að unnt sé að ljúka verkinu á þessu ári er óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 20.000.000.

    Í gildandi fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að hluti framkvæmdarinnar færi fram á árinu 2027 og voru þar áætlaðar kr. 10.000.000 til verkefnisins. Verði þessi viðauki samþykktur mun framkvæmdinni ljúka á árinu 2026 og því verður ekki þörf á að nýta þær fjárheimildir sem áætlaðar voru fyrir árið 2027.

    Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.

  • Byggðarráð - 1278 Eitt tilboð barst:
    Vogaklettur ehf., kr. 69.896.000.-

    Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboðinu í samræmi við viðauka þann sem samþykktur var í fyrsta dagskrárlið.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1278 Þrjú tilboð bárust:

    Hvammstak ehf., kr. 35.704.060.-
    HFA smíði ehf., kr. 39.526.235.-
    Tveir smiðir ehf., kr. 41.991.435.-

    Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?