Mál til umsagnar: Stofnun atvinnuveganna, 568. mál

Málsnúmer 2603092

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1275. fundur - 09.04.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá atvinnuveganefnd Alþingis um 568. mál, Stofnun atvinnuveganna.
Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að stjórnsýsla á sviði atvinnuvega sé skilvirk og vel skipulögð. Markmið stjórnvalda á ávallt að vera að veita sem besta þjónustu með eins einföldum og skilvirkum hætti og kostur er. Ráðið telur hins vegar að frumvarpið, eins og það er lagt fram, feli í sér of víðtæka og illa ígrundaða breytingu sem geti leitt til aukinnar miðstýringar, fjarlægðar frá atvinnulífi og veikari þjónustu, sérstaklega í dreifbýli. Ráðið gerir eftirfarandi athugasemdir við málið:

Veruleg miðstýring og samþjöppun valds
Frumvarpið felur í sér að fjölbreytt og ólík verkefni á sviði landbúnaðar, matvælaeftirlits og annarra atvinnugreina eru sameinuð innan einnar stofnunar. Hér er um að ræða grundvallarbreytingu á stjórnsýslu sem gengur lengra en eðlileg einföldun og felur í sér verulega samþjöppun valds. Einnig er gerð athugasemd við áætlaðan tímaramma en ráðið dregur í efa að unnt verði að ný stofnun af þessari stærðargráðu geti mögulega tekið til starfa 1. janúar 2027 eins og fram kemur í frumvarpinu.

Matvælaeftirlit fjarlægist sveitarfélög og nærsamfélag
Frumvarpið gerir ráð fyrir að matvælaeftirlit flytjist að verulegu leyti frá sveitarfélögum til nýrrar ríkisstofnunar. Með því rofnar tenging eftirlits við nærsamfélag, staðbundna þekkingu og ábyrgð gagnvart íbúum. Slíkar breytingar hafa sætt verulegri gagnrýni á fyrri stigum málsins og bent hefur verið á að þær geti leitt til lakari þjónustu, minni viðbragðshraða og aukinnar fjarlægðar milli eftirlitsaðila og þeirra sem sæta eftirliti.

Hætta á að landbúnaður verði jaðarsettur
Með sameiningu ólíkra málaflokka innan einnar stórrar stofnunar er hætta á að landbúnaður, sem er lykilatvinnugrein í Húnaþingi vestra og víða um land, verði hlutfallslega veikari innan stjórnsýslunnar. Landbúnaður krefst sérhæfðrar nálgunar og djúprar þekkingar og ekki er sýnt fram á hvernig tryggja eigi að sú áhersla haldist innan enn stærri stofnunar með mun víðfeðmari verkefni en verið hefur.

Veikari þjónusta við bændur og smærri aðila
Byggðarráð hefur verulegar áhyggjur af því að þjónusta við bændur og smærri rekstraraðila versni. Aðgengi að sérfræðiþjónustu, skýr samskipti og hraðvirk málsmeðferð eru lykilatriði í rekstrarumhverfi landbúnaðar. Hætta er á að slík þjónusta veikist þegar hún færist inn í stærri og miðlægari stofnun með fjölbreyttari verkefni og flóknari stjórnskipan.

Tap á sérþekkingu og yfirsýn
Sameining stofnana af þessari stærðargráðu felur í sér verulega áhættu á að sérþekking glatist eða þynnist út. Byggðarráð telur óljóst hvernig tryggja eigi að sérþekking á landbúnaði og staðbundnum aðstæðum haldist óskert við þær breytingar sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Það kallar m.a. á markvissa dreifingu starfa um allt land.

Neikvæð áhrif á byggðaþróun og skortur á áhrifamati
Frumvarpið hefur ekki eingöngu stjórnsýsluleg áhrif heldur hefur bein áhrif á byggðaþróun. Í sveitarfélögum þar sem landbúnaður er burðarás atvinnulífs getur aukin fjarlægð í stjórnsýslu og veikari þjónusta haft neikvæð áhrif á búsetu og atvinnu. Slík áhrif hafa ekki verið metin með fullnægjandi hætti. Byggðarráð telur almennt að ekki liggi fyrir nægjanlegt mat á áhrifum frumvarpsins á landbúnað, atvinnulíf í dreifbýli og sveitarfélög. Ekki hefur verið sýnt fram á að þær breytingar sem lagðar eru til muni skila þeim ávinningi sem stefnt er að.

Staðsetning höfuðstöðva og jafnvægi í byggð
Verði frumvarpið að lögum telur byggðarráð eðlilegt að horft verði sérstaklega til þess að staðsetja höfuðstöðvar nýrrar stofnunar utan svokallaðs Hvítár-Hvítár svæðis. Með hliðsjón af umfangi verkefna stofnunarinnar og mikilvægi hennar fyrir atvinnulíf um allt land liggur beinast við að staðsetning hennar styðji við byggðaþróun og jafnvægi milli landshluta, ekki síst með hliðsjón af tengslum stofnunarinnar við landbúnað og aðrar atvinnugreinar í dreifbýli.

Með hliðsjón af framangreindu leggst byggðarráð Húnaþings vestra gegn því að frumvarpið nái fram að ganga í núverandi mynd. Ráðið hvetur til frekari vinnu við málið í nánu samráði við sveitarfélög og hagsmunaaðila, með það að markmiði að tryggja skilvirka stjórnsýslu sem tekur mið af aðstæðum um land allt og styður við landbúnað og byggðaþróun.

Var efnið á síðunni hjálplegt?