Mál til umsagnar: Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits), 582. mál

Málsnúmer 2603091

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1275. fundur - 09.04.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 582. mál, Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).
Byggðarráð tekur undir mikilvægi skýrs og skilvirks regluverks. Markmið stjórnvalda á ávallt að vera að veita sem besta þjónustu með eins einföldum og skilvirkum hætti og kostur er. Ráðið fær hins vegar ekki séð að frumvarpið, eins og það er lagt fram, nái þeim markmiðum og telur að það geti þvert á móti leitt til hins gagnstæða.

Frumvarpið felur í sér verulegar breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Samkvæmt lögum nr. 7/1998 bera sveitarfélög ábyrgð á heilbrigðiseftirliti sem byggir á staðbundinni þekkingu og nálægð við íbúa og atvinnulíf. Sú þekking er forsenda árangursríks eftirlits og ekki hefur verið sýnt fram á að aukin miðstýring samrýmist þeim lagaramma eða skili betri árangri.

Þá felur frumvarpið í sér grundvallarbreytingu á stjórnskipulagi með því að draga úr hlutverki heilbrigðisnefnda eða fella þær alfarið niður. Slíkar breytingar hafa sætt verulegri gagnrýni í samráðsgátt stjórnvalda á fyrri stigum málsins, þar sem bent hefur verið á að þær veiki sveitarstjórnarstigið og færi stjórnvaldsákvarðanir fjær íbúum. Byggðarráð telur jafnframt að frumvarpið taki ekki nægjanlegt tillit til aðstæðna í dreifbýli, þar sem samræming á landsvísu getur í framkvæmd leitt til minni sveigjanleika og aukins álags á atvinnulíf utan þéttbýlis.

Óljóst er hvernig fjármögnun þeirra verkefna sem samkvæmt frumvarpinu yrðu áfram á höndum sveitarfélaga verður tryggð, nái frumvarpið fram að ganga. Byggðarráð telur það alvarlegan annmarka að ekki liggi fyrir kostnaðarmat né raunhæft mat á áhrifum frumvarpsins á fjárhag sveitarfélaga.

Þrátt fyrir markmið um einföldun er hætta á að frumvarpið leiði til aukins flækjustigs, m.a. vegna óskýrrar verkaskiptingar og mögulegs tvíverknaðar. Einnig lýsir byggðarráð áhyggjum af því að miðlæg leyfisveiting geti leitt til lengri afgreiðslutíma og verri þjónustu, sérstaklega á landsbyggðinni. Slíkar breytingar geta haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Að lokum telur byggðarráð að ekki hafi verið sýnt fram á að þær athugasemdir sem komið hafa frá ESA kalli á svo víðtækar breytingar. Unnt sé að ná fram umbótum innan núverandi kerfis, sbr. umsagnir heilbrigðiseftirlita á fyrri stigum málsins.

Með hliðsjón af framangreindu, og í ljósi þeirrar verulegu gagnrýni sem fram hefur komið á fyrri stigum málsins, leggst byggðarráð Húnaþings vestra gegn því að frumvarpið nái fram að ganga í núverandi mynd. Ráðið hvetur til frekari vinnu við málið í nánu samráði við sveitarfélög landsins, með það að markmiði að tryggja raunverulega einföldun, skýra verkaskiptingu og virðingu fyrir staðbundinni þekkingu og aðstæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?