Mál til umsagnar: Verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur), 565. mál

Málsnúmer 2603088

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1274. fundur - 30.03.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 565. mál, Verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur).
Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar vinnu þeirri sem nú stendur yfir við að skýra lagaramma um meðferð virkjunarhugmynda í vindorku innan verndar- og orkunýtingaráætlunar og telur hana löngu tímabæra. Ráðið gerir ekki athugasemd við að virkjunarhugmyndir í vindorku fari inn í rammaáætlun eins og lagt er til í frumvarpsdrögunum enda er um að ræða þann farveg sem í gildi er fyrir aðra virkjanakosti. Að því sögðu vill ráðið leggja ríka áherslu á að skipulagsvaldið er á höndum sveitarfélaga og er hornsteinn í sjálfstjórnarrétti þeirra. Í frumvarpsdrögum á fyrri stigum málsins var í samræmi við það gert ráð fyrir því að virkjunarkostir í vindorku yrðu undanþegnir þeirri meginreglu að niðurstaða rammaáætlunar væri bindandi gagnvart skipulagsvaldi sveitarfélaga. Því verða það að teljast vonbrigði að í því frumvarpi sem hér er lagt fram að niðurstaða rammaáætlunar muni hafa bindandi réttaráhrif gagnvart sveitarfélögunum nái frumvarpið fram að ganga, þvert á það sem lagt var til í frumvarpsdrögum. Með því er tekið tillit til athugasemda orkufyrirtækja og samtaka þeirra en gengið gegn athugasemdum sveitarfélaganna og samtaka þeirra. Það að verkefnisstjórn beri að taka tillit til athugasemda sveitarfélaga sem mótvægi við bindandi réttaráhrif er að mati ráðsins marklaust. Að mati ráðsins er ekkert því til fyrirstöðu að annað gildi um réttaráhrif rammaáætlunar í tengslum við vindorku en vatnsafl og jarðvarma. Ráðið leggst því gegn því að frumvarpið nái fram að ganga í óbreyttri mynd.
Var efnið á síðunni hjálplegt?