Umsókn um lóð á hafnargarði Hvammstanga

Málsnúmer 2603078

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1274. fundur - 30.03.2026

Lögð fram umsókn Biogenic Minerals ehf. um lóð á syðri hluta Hvammstangahafnar.
Ekki er unnt að úthluta umbeðnu svæði þar sem þar er ekki skilgreind byggingarlóð heldur svæði fyrir uppsátur skv. deiliskipulagi. Vilji umsækjandi óska eftir breytingum á skipulagi er honum bent á að senda umhverfis- og skipulagsráði formlega beiðni þar um. Vakin er athygli á að skv. 12. gr. samþykktar um byggingarleyfis- og þjónustugjöld ber sá sem óskar eftir breytingu á skipulagi kostnað sem verkið hefur í för með sér verði á annað borð samþykkt að ráðast í slíkar breytingar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?