Mál til umsagnar: Drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga mál nr. 66/2026

Málsnúmer 2603072

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1274. fundur - 30.03.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytinu um mál nr. 66/2026 í samráðsgátt stjórnvalda, Drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga.

Um er að ræða útfærslu skilyrða fyrir samþykkt sérstakrar dreifbýlisgjaldskrár dreifiveitna raforku. Fram til þessa hefur verið horft til strangra skilgreininga Hagstofunnar hvaða svæði teljast til dreifbýlis m.t.t. íbúafjölda og fjarlægða á milli húsa. Með breytingunum er lagt til að horfið verði frá þeim viðmiðum en í stað þess tekin upp krafa um að dreifiveitur sýni fram á sannarlegan kostnaðarauka vilji þær beita dreifbýlisgjaldskrá. Byggðarráð fagnar framkominni tillögu og telur hana jákvætt skref í átt að jöfnun raforkukostnaðar milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Var efnið á síðunni hjálplegt?