Byggðarráð - 1270

Málsnúmer 2602002F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 400. fundur - 12.02.2026

Fundargerð 1270. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 400. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1270 Áður á dagskrá 1268. fundar.
    Lögð fram tillaga að breytingum á leiguverði íbúða í eigu Húnaþings vestra. M.a. er um að ræða breytingu þess efnis að leiga allra eigna sveitarfélagsins verði færð nær markaðsverði og tekjulægri hópum þá mætt með sérstökum húsaleigubótum. Sveitarstjóra er falið að skoða framlagða tillögu með tilliti til greiðslna sérstakra húsaleigubóta.
  • Byggðarráð - 1270 Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra undirritun hans. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1270 Tilboðið gera Haraldur Teodor Ödqvist og Jónína Arndís Guðjónsdóttir. Hljóðar tilboðið upp á kr. 10.000.000.- með fyrirvara um fjármögnun.

    Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera gagntilboð upp á kr. 13.000.000.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1270 Í erindinu koma fram áhyggjur af fyrirhuguðum flutningi eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna sem fram koma í máli S-3/2026 í Samráðsgátt stjórnvalda: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Vísað er til umsagnar Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða (SHÍ). Byggðarráð tekur heilshugar undir áhyggjur þær sem fram koma í erindinu og felur sveitarstjóra að taka undir umsögn SHÍ um málið.
  • Byggðarráð - 1270 Samkvæmt tilkynningu innviðaráðuneytis er Húnaþingi vestra úthlutað 100 tonnum af byggðakvóta fiskveiðiárið 2025/2026 í stað 130 tonnum fiskveiðiárið 2024/2025. Frestur var veittur til 12. febrúar til að gera tillögur að sérreglum um úthlutun kvótans eftir framkomnar athugasemdir um áður samþykktar reglur.
    Ákvæði reglugerðar nr. 1335/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Húnaþings vestra með eftirfarandi viðauka/breytingum:
    I.1.málsl. 1.mgr. 4.gr. reglugerðarinnar: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1.gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum og ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3.gr., eftir því sem við á þannig að:
    a. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 818/2024 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 819/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025. Við skiptingu þessa 50% byggðakvóta Húnaþings vestra, til framangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
    b. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 1334/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026. Skiptingunni verður háttað með þeim hætti að hvert fiskiskip sem uppfyllir framangreind ákvæði hlýtur að lágmarki 30 tonn og eftirstöðvum úthlutað miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
    c. Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skilyrðum.
    Rökstuðningur: Af þeim bátum sem gera út frá Hvammstanga er aðeins hluti þeirra sem varð fyrir áhrifum aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa. Fyrir þá báta sem ekki hljóta kvóta vegna rækjubrests er mjög erfitt að safna upp löndunarreynslu og því er lagt til að sá hluti byggðakvótans sem b. liður nær yfir verði að lágmarki veitt 30 tonnum á hvern bát og því sem eftir stendur úthlutað út frá löndunarreynslu.
    II. 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
    Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
    Rökstuðningur: Í byggðarlaginu er engin fiskvinnsla.
    Byggðarráð samþykkir framangreindar reglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1270 Byggðarráð samþykkir að heimila sölu á bifreiðinni í umboðssölu hjá Brimborg. Ráðið samþykkir jafnframt að veita sveitarstjóra heimild til að leggja mat á tilboð sem kunna að berast í bifreiðina og taka ákvörðun um sölu. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1270
Var efnið á síðunni hjálplegt?