Byggðarráð - 1268

Málsnúmer 2601008F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 400. fundur - 12.02.2026

Fundargerð 1268. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 400. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1268 Í minnisblaðinu kemur fram greining á fermetraverði leiguíbúða í eigu sveitarfélagsins samanborið við nærliggjandi sveitarfélög og meðalfermetraverð samkvæmt skráðum húsaleigusamningum hjá HMS. Meðalfermetraverð leiguíbúða í eigu Húnaþings vestra er nokkru lægra en hjá þeim sveitarfélögum sem skoðuð voru. Byggðaráð felur sveitarstjóra að gera tillögu að útfærslu á hækkunum á leiguverði íbúða í eigu sveitarfélagsins og leggja fyrir ráðið.
  • Byggðarráð - 1268 Úthlutun úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra árið 2026 var auglýst með umsóknarfresti til 10. janúar. 2 umsóknir bárust. Alls var sótt um kr. 3.000.000. Til úthlutunar eru kr. 2.500.000. Að loknu mati á umsóknum samþykkir byggðarráð að veita eftirtöldum verkefnum styrk:

    Framhugsun ehf, vegna verkefnisins Rabarbaron - efling framleiðslu og úrvinnsla afurða, kr. 2.000.000.-
    Selasetur Íslands, vegna verkefnisins Markaðssókn Selasetursins vegna selaskoðunar í sýndarveruleika, kr. 500.000.-

    Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningum við styrkhafa.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1268 Vegna rangrar skráningar í málakerfi var málið ekki tekið fyrir áður en viðburður fór fram eins og áskilið er í reglum um veitingu afsláttar en umsókn barst í nóvember 2025. Beðist er velvirðingar á því. Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu.
  • .4 2601022 Ungmennaráð
    Byggðarráð - 1268 Sveitarstjóra er falið að kalla eftir tilnefningum í ungmennaráð.
  • Byggðarráð - 1268 Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir yfir áhyggjum sínum af áhrifum framlagðra frumvarpsdraga og leggur fram eftirfarandi tillögur sem eru til þess fallnar að vernda náttúru og þar með talið íslenska laxastofninn:
    1.
    Stækkun opins sjókvíaeldis á frjóum laxi verði stöðvuð og skýr, tímasett áætlun um tækniskipti sett fram.
    Byggðarráð leggst gegn því að heimiluð verði frekari aukning á opnu sjókvíaeldi á frjóum laxi. Ráðið leggur áherslu á að sett verði skýr, tímasett áætlun um að sjókvíaeldi færist yfir í lokuð kerfi og fiskur í sjókvíum verði ófrjór. Frumvarpið gerir slíkt einungis að reglugerðarheimild ráðherra, en ekki skýru lagaákvæði. Sömuleiðis er áréttað að markmiðsgrein frumvarpsins verði aðlöguð þannig að hún samræmist því sem er að finna í núverandi löggjöf um að hagsmunir eldisfyrirtækja megi ekki vera teknir fram yfir hagsmuni náttúrunnar.
    2.
    Áhættumat erfðablöndunar verði bindandi - og megi aldrei verða framleiðsluaukandi bakdyraleið.
    Byggðarráð telur afar varhugavert að ráðherra geti vikið frá ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar varðandi áhættumat erfðablöndunar og stillt heildarlaxamagn eftir öðrum þáttum. Áhættumatið ætti einungis að horfa til áhrifa laxeldis á villta laxastofna en ekki horfa til annarra þátta. Byggðarráð áréttar jafnframt að aðgerðir í ám skuli aldrei teljast mótvægisaðgerðir við áhættumat erfðablöndunar.
    3.
    Undanþáguheimildir sem opna á eldi innan friðunarsvæða verði felldar brott.
    Byggðarráð Húnaþings vestra hafnar sérstaklega 3. mgr. 8. gr. (heimild til lokaðs eða hálflokaðs eldis innan svæða sem ella sættu banni eða friðun). Áratuga rekstrarreynsla við íslenskar aðstæður þyrfti að liggja fyrir sem sýndi með óyggjandi hætti að slík kerfi bæru enga áhættu fyrir villta laxastofna til að unnt væri að veita slíkar undanþágur. Byggðarráð telur að slíkrar reynslu megi aðeins afla á svæðum þar sem sjókvíaeldi er þegar stundað - en ekki með því að opna friðuð og viðkvæm svæði fyrir nýrri starfsemi með tilheyrandi áhættu.
    4.
    Dregið verði úr réttaróvissu um eignarrétt og komið í veg fyrir framleiðsluaukandi undanþágur.
    Byggðarráð gerir alvarlega athugasemd við að löggjöfin festi mögulega í sessi atvinnuréttindi sem skapa framtíðartregðu til nauðsynlegra breytinga. Fjölmörg álit og umsagnir hafa bent á að hugtakið laxahlutur beri mörg einkenni eignarréttinda, sem geti leitt til skaðabótaskyldu þegar íslensk stjórnvöld setja strangari takmarkanir eða banna eldi í opnum kvíum með frjóum laxi síðar meir.

    5.
    Viðurlög við stroki verði raunverulega letjandi.
    Byggðarráð telur að ákvæði um strok verði að hafa skýrar, fyrirsjáanlegar afleiðingar sem bíta á rekstrargrundvelli laxeldisfyrirtækja, m.a. með skerðingu framleiðsluheimilda og raunverulega letjandi sektum. Slík úrræði voru í ríkara mæli í fyrri frumvörpum en vantar í þau frumvarpsdrög sem nú eru lögð fram.
    6.
    Formlegur vettvangur hagsmunaaðila verði styrktur til að tryggja samráð og jafnræði.
    Byggðarráð leggst gegn því að samráðsvettvangur hagsmunaaðila þ.m.t. sveitarfélaga verði veiktur og telur að efla eigi slíkt samráð fremur en að leggja það niður.
    7.
    Tryggja verður fjármögnun aðgerða veiðifélaga og verndar.
    Byggðarráð telur óheppilegt að fjármögnun vegna vöktunar og rannsókna sé sett fram án skýrrar ráðstöfunar og krefst þess að veiðifélög og veiðiréttarhafar hafi raunhæfan aðgang að fjármagni til vöktunar, rannsókna og nauðsynlegra aðgerða til verndar villtum laxastofnum og lífríki ferskvatns.
    8.
    Tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga.
    Byggðarráð tekur undir athugasemd sem fram kemur í umsögn byggðarráðs Skagafjarðar um málið þar sem lögð er áhersla á að tekjuskipting á milli ríkis og sveitarfélaga vegna greinarinnar verði endurskoðuð. Brýnt er að sveitarfélög fái sína hlutdeild með beinum hætti, líkt og t.d. í Noregi, í stað þess að þurfa að sækja um úthlutun úr Fiskeldissjóði. Er því fagnað að komin sé fram tillaga um samfélagsframlag sem rennur beint til sveitarfélaga en eðlilegt væri að það framlag yrði ákveðið hlutfall af framleiðslugjaldi í stað fjárveitingar af fjárlögum hverju sinni.
Var efnið á síðunni hjálplegt?