Fjallskilastjórnir

16. fundur 23. nóvember 2026 kl. 11:00 - 13:00 Staðarbakki
Nefndarmenn
  • Þórarinn Óli Rafnsson
  • Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
  • Stella Dröfn Bjarnadóttir

Efni fundar: Farið yfir fjallskil

Farið var yfir fjallskil, unna vinnu og fleira varðandi fjallskil. Upplýsingar sendar á Húnaþing vestra.

Önnur mál: Fjallskiladeild Miðfirðinga harmar að fjárframlög til fjallskiladeilda í héraðinu séu að dragast verulega saman, þegar frekar ætti að vera að bæta í vegna brýns viðhalds á mörgum eignum sveitafélagsins sem deildirnar reka.

Fjallskiladeildin fær ekki séð að fullnægjandi viðhald á bæði réttum, skálum og girðingum í eigu sveitafélagsins verði hægt að inna af hendi og því verði að fara að forgangsraða hvað af eignum sveitafélgasins eigi að viðhalda og hvað eigi að láta að drappast niður.

Fjallskiladeildin vill vekja athygli á að fundargerð frá opnum fundi þann 14. nóvember 2026 hefur ekki enn verið birt á heimsíðu sveitafélagsins.

Fundi slitið klukkan 13:00

Var efnið á síðunni hjálplegt?