Fjallskilastjórnir

15. fundur 14. nóvember 2026 kl. 14:00 - 16:25 Laxarhvammi
Nefndarmenn
  • Þórarinn Óli Rafnsson
  • Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
  • Stella Dröfn Bjarnadóttir

Fundarmenn þakka fyrir góða mætingu á fundinn.

  • Efni fundar:
    • Rætt um breytingar á seinni leitum. Dróni var keyptur og farið yfir notkun á honum í haust.
    • Hugmynd að setja hring í miðjuna á Miðfjarðarrétt.
    • Tímabært viðhald á réttinni.
    • Tillaga að færa stóðrétt fram á laugardagsmorgun, tillaga felld með öllum atkvæðum, utan einu atkvæði sem sat hjá, og verður því óbreytt fyrirkomulag.
  • Önnur mál:
    • Skoðað verður hvort megi nota aftur girðingu norðan við safngirðingu sem söfnunarhólf fyrir skilarétt næsta haust.
    • Herja á sveitarstjórn að fá fjármagn til þess að gera upp heiðagirðinguna skipulega.
    • Bæta aðstöðu á Húksheiðaskála.
  • Fundi slitið kl. 16:25
Var efnið á síðunni hjálplegt?