Fjallskilastjórnir

12. fundur 06. ágúst 2026 kl. 09:00 - 14:00 Syðra-Kolugil
Nefndarmenn
  • Ingvar Ragnarsson
  • Garðar Valur Gíslason
  • Eggert Örn Kristjánsson.

Fundur ì fjallskilastjórn Vìðdælinga haldinn 6 ágúst 2026 kl. 09:00 á Syðra Kolugili . Mættir til fundar eru Ingvar Ragnarsson, Garðar Valur Gíslason og Eggert Örn Kristjánsson.
efni fundarins er álagning fjallskila og útbúin gangnaseðill.

1. Álagning fjallskila
Eingin ákveðin 400 kr. Dagsverk 25.000 kr.
Framtalið fjallskylt búfé
sauðfé 4103
hross 996 x 6 einingar = 5976 einingar
samtals 10.079 einingar

einnig var ákveðið að breyta örlítið fyrirkomulagi ganga að því leiti að einungis verða send hjól til að smala fyrir framan Fellaskála og því fara rekstrarmenn gangnahrossa á stað á þriðjudag í staðin fyrir að fara á mánudag eins og verið hefur.

Göngur hefjast þriðjudaginn 1 september. Seinni göngur verða 26 september. Stóðsmölun verður föstudaginn 2 október og stóðréttir verða laugardaginn 3 október.

ekki fleira tekið fyrir á fundi.


Fundi slitið 14:00


Var efnið á síðunni hjálplegt?