Fjallskilastjórnir

10. fundur 30. júlí 2026 kl. 20:00 - 23:00 Gröf
Nefndarmenn
  • Ágúst Þorbjörnsson
  • Indriði Karlsson
  • Þormóður Heimisson
Fundargerð ritaði: Ágúst Þorbjörnsson

Nefndin skipti með sér verkum Þormóður Heimisson formaður, Ágúst Þorbjörnsson ritari og Indriði Karlsson meðstjórnandi

Fjallskilaseðill: Göngur og réttir 12 .september. Skyldusmalamennska 10.október.

Fjallskilagjald óbreytt.

Viðhald vegar uppá Vatnsnesfjall: Úthlutun til viðhalds kr. 736,333,-

Hamarsrétt viðhald; Skipta þarf um lamir á einhverjum hliðum og einnig þyrfti að endurnýja lausar grindur og einnig stefnt á að fúaverja réttina á næsta ári.

Hamarsrétt: Þormóður sagði frá að eigenda skipti hefðu orðið á Almenningi og að enginn samningur væri til um land undir réttina.

Almennur fundur: Stent á að halda almennan fund næstkomandi vetur.

Ágangur sauðfjár: Rætt um erindi vegna ágangs sauðfjár. Samþykkt að vísa erindinu til landbúnaðarráðs og skorað á landbúnaðarráð að vinna samræmda verkferla varðandi ágang sauðfjár fyrir allar fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra.

Fundi slitið kl. 23:00

Var efnið á síðunni hjálplegt?