Fjallskilastjórnir

10. fundur 12. júní 2026 kl. 14:00 - 15:45 Staðarbakki
Nefndarmenn
  • Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
  • Stella Dröfn Bjarnadóttir
  • Þórarinn Óli Rafnsson

Fundur Fjallskilastjórnar Miðfirðinga 12.06.26 haldinn á Staðarbakka kl 14:00

Mætt: Dagbjört Diljá Einþórsdóttir, Stella Dröfn Bjarnadóttir og Þórarinn Óli Rafnsson

Dagskrá:

  1. Gróðureftirlit á heiðum
  2. Opnun heiða
  3. Önnur mál

Ástand gróðurs á heiðum Miðfirðinga er ágætt og er gróður komin vel af stað.

Með það að leiðarljósi og í samráði við ráðunaut hefur verið ákveðið að heimila upprekstur á sauðfé föstudaginn 12. júní og hrossa sunnudaginn 28. júní n.k.

Fjallskilastjórn sér ekki ástæðu til að hafa neinar hömlur í upphafi en höfðar til skynsemi bænda.

Fjallskilastjórn mælist til þess að fullorðin hross fylgi tryppum á heiðar til að auðvelda heimtur á þeim í haust.

Eins og undanfarin tvö ár verða fjárréttir og stóðréttir á sitthvorum deginum, í ár er það laugardaginn 5. september (sauðfé) og sunnudaginn 6. september (hross).

Umgengni um Miðfjarðarrétt síðasta sumar var til fyrirmyndar og skorar fjallskilastjórn á þá sem vilja og þurfa að nýta aðstöðuna sem er öllum opin að halda áfram að ganga vel um svæðið svo það sé okkur öllum til sóma.

Stefnt er að því að halda opinn fund fjallskiladeildar Miðfirðinga um fjallskilamál og framkvæmd seinni leita í Miðfirði eftir miðjan júlí n.k. Verður nánar auglýst síðar.

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl 15:45.

Var efnið á síðunni hjálplegt?