Fjallskilastjórnir

9. fundur 21. apríl 2026 Víðihlíð
Fundargerð ritaði: Sigríður Ólafsdóttir

Deildarfundur Fjallskiladeildar Víðdælinga haldinn 21.4.2026 í Víðihlíð.

 

Dagskrá:

  1. Fundarsetning og skipan fundarstarfsmanna
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram til kynningar
  3. Drög að ársreikningi lögð fram til kynningar
  4. Umræður um skýrslu stjórnar, ársreikninga
  5. Önnur mál

 


  1. Formaður fjallskilastjórnar, Dagný Ragnarsdóttir, setti fund og tilnefndi Júlíus Guðna Antonsson sem fundarstjóra og Sigríði Ólafsdóttur sem fundarritara. Samþykkt af fundi.
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram til kynningar.

Dagný Ragnarsdóttir, fjallskilastjóri, fór yfir helstu verkefni fjallskilastjórnar.

Farið var í gróðureftirlit með ráðunauti RML 9. júní og upprekstur fjár leyfður í kjölfarið. Upprekstur hrossa var leyfður frá 14. júní.

Göngur hófust 1. september, réttað var í Valdarásrétt 5. september og í Víðidalstungurétt 6. september. Búið er að ákveða að farið verði af stað í göngur 31. ágúst árið 2026. Göngur gengu vel. Seinni göngur voru farnar 26-27. september og gengu vel enda veður gott. Fjallskil á hverja á voru 400 krónur og dagsverk voru hækkuð úr 20.000 krónum í 22.000 krónur. Talin voru 380 hross úr réttum. Stóðsmölun gekk ágætlega en tryggja þarf að hross haldist á heiðinni fram að stóðsmölun. Almennt viðhald var á skálum, búið var til nýtt hrossahólf við Haugakvíslarskála með randbeitarstaurum. Farið var í að laga veg upp hjá Kambshól. Miklar framkvæmdir voru við réttir en nýjir dilkar voru smíðaðir í Valdarásrétt og í Víðidalstungurétt var gert við steypuviðgerðir.

  1. Drög að ársreikningi lögð fram til kynningar

Tekjur voru 3.053.308 krónur að meðtöldum styrk frá Húnaþingi vestra að upphæð 703.000 krónur. Gjöld voru 4.462.003 krónur. Tap ársins var 1.408.695 krónur.

  1. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga

Steinbjörn Tryggvason spurði hvað lægi að baki kostnaði við aukaleitir. Dagný svaraði því. Almennar umræður urðu um hvenær kindur fundust og hvar. Heimir Birgisson spurði hvort ekki hefði verið flogið síðastliðið haust og það var ekki gert vegna skorts á flugmönnum.

  1. Önnur mál

Pétur Þröstur Baldursson spurði hvort eignarhald á landi undir Víðidalstungurétt hefði verið staðfest. Stærð lóðar sem fylgir réttinni er ekki komin alveg á hreint en merkjalýsandi á vegum Húnaþings vestra er að vinna í málinu.

Pétur spurði nánar út í viðskiptastöðu gagnvart Húnaþingi vestra. Inneign deildarinnar hjá Húnaþingi vestra er 1.280.897 krónur.

Ingvar Ragnarsson skýrði nánar hvernig kostnaður við seinni göngur var reiknaður. Heimir spurði nánar út í kostnað við fjárflutninga.

Kristín Guðmundsdóttir spurði hvenær fyrri heimalandasmölun er og hún er 19. september.

Dagný ræddi um hross sem eru að flakka út fjall af heiðinni og hvaða leiðir eru færar til að halda þeim á réttum stað. Steinbjörn telur að stór hluti skýringar á flakki á hrossum sé að þau eru keyrð fram á heiði og þekkja sig þar með verr á svæðinu en áður. Almennar umræðar um framtíðarskipulag girðinga í fjallinu.

Júlíus Guðni taldi að gott væri að girða Haugakvíslarskála af á sama hátt og gert hefur verið í Mönguhólsskála og Fosshól. Fundur tók undir. Nánar rætt um fyrirséða viðhaldsþörf á skálum.

Ingvar ræddi um versnandi ástand vega á heiðinni og taldi að peningum í heiðavegi væri ekki skipt á réttan máta á milli deilda.

Steinbjörn spurði hvort fjallskiladeildin sæi um viðhald á stóðhólfi. Svarið er já.

Fundargerð upplesin og samþykkt.

Dagný þakkaði fyrir góðan fund og sleit fundi klukkan 21.35.

Var efnið á síðunni hjálplegt?