Fjallskilastjórnir

8. fundur 04. desember 2025 kl. 17:00 - 17:12 Syðra-Kolugil
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólafsdóttir
  • Dagný S. Ragnarsdóttir
  • Ingvar Ragnarsson

Fundur í fjallskilastjórn Víðdælinga haldinn 4.12.2025 kl. 17:00 á Syðra-Kolugili.

Mætt voru Dagný S. Ragnarsdóttir, Ingvar F. Ragnarsson og Sigríður Ólafsdóttir, varamaður í stað Maríönnu E. Ragnarsdóttur.

Efni fundar var erindi sem barst fjallskilastjórn frá Garðari V. Gíslasyni og Maríönnu E. Ragnarsdóttur bændum í Stórhól, þar sem þau óska eftir niðurfellingu fjallskila á sauðfé sumarið 2025 vegna takmarkana á nýtingu afréttar í kjölfar riðuniðurskurðar. Með vísan í 9 gr. Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra samþykkir fjallskilastjórn að fella niður 50% af fjallskilum sauðfjár í Stórhól.

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:12.

Var efnið á síðunni hjálplegt?