Fjallskilastjórnir

7. fundur 09. júní 2025 kl. 21:00 - 22:00 Bálkastaðir
Nefndarmenn
  • Guðmundur Ísfeld
  • Brynjar Ottesen
  • Jón Kristján Sæmundsson
Fundargerð ritaði: Guðmundur Ísfeld
  • Viðhaldi heiðarvegar og girðingar að mestu lokið.
  • Gróðurfarsnefnd hefur skoðað heiðina,
  • Stjórn Fjallskiladeildar Hrútfirðinga að austan hefur ákveðið að leyfi til upprekstrar á afrétt árið 2025 verði með eftirfarandi hætti.

Heimilt verði að fara með fé á heiði frá og með

þriðjudeginum 10. júní kl 12:00 og hross frá og með 10. júlí.

Æskilegt er að dreifa upprekstri á nokkurn tíma og mælst er til þess að sem fæst fé verði sleppt vestan Hrútafjarðarár.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið klukkan 22:00

Var efnið á síðunni hjálplegt?