Fjallskilastjórn Miðfirðinga

Fjallskilastjórn Miðfirðinga fjallskilastjórnar haldinn fimmtudaginn 10. nóvember 2022 kl. 20:00 að Staðarbakka, Miðfirði.

Fundarmenn

Þórarinn Óli Rafnsson formaður, Pétur Hafsteinn Sigurvaldason og Valgerður Kristjánsdóttir.

Fundargerð ritaði: Valgerður Kristjánsdóttir

Dagskrá:
1. Unnið að álagningu fjallskila. Fjallskilaskylt er allt sauðfé, veturgamalt og eldra, og hross. Þó ekki hross allt að 5 á lögbýli enda gangi þau í heimahögum. Lambsverð er ákveðið 15.003,- kr. Ákveðið að hækka verð á einingu um 5%. Þá verður álagning á sauðfé 115 kr og hross 808 kr og landverð er 1,8%.
2. Leiga á hesthúsum og landi hækkar skv. Neysluvísitölu um 5% og er sú sama á alla leigusala.
3. Almennar umræður um fyrirkomulag á réttum næsta haust. Einnig rætt um girðingar.
• Hross 2022 eru 1194 og gjaldskyld 941.
• Ær 2022 eru 11.490 voru 11.730 árið áður.

Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 22:30.
Valgerður Kristjánsdóttir fundarritari
Þórarinn Óli Rafnsson
Pétur Hafsteinn Sigurvaldason

Var efnið á síðunni hjálplegt?