Fjallskilastjórn Víðdælinga.

Fjallskilastjórn Víðdælinga. fjallskilastjórnar haldinn miðvikudaginn 27. júlí 2022 kl. 20:00 Syðra-Kolugil.

Fundarmenn

Dagný Ragnarsdóttir, Ingvar Ragnarsson og Maríanna Ragnarsdóttir 

Fundargerð ritaði: Maríanna Eva Ragnarsdóttir.

1. Byrjað á álagningu fjallskila og niðurjöfnun verka.
    Framtalið fjallskilaskylt búfé 2022:
    Sauðfé = 4.579
    Hross 1168 x 6 einingar = 7.008
    Samtals 11.587 einingar


Göngur hefjast 5.september, réttað er í Valdarásrétt 9.september kl. 9 og í
Víðidalstungurétt 10.september kl. 10.
Seinni göngur hefjast föstudaginn 16.september og verða í 3 daga.


Fyrri heimalandasmölun verður 24.september og réttað í Víðidalstungurétt 25.september
kl. 10.
Seinni heimalandasmölun verður 8.október, réttað í Víðidalstungurétt 9.október kl. 10.


Stóðsmölun er föstudaginn 30.september og réttað laugardaginn 1.október kl. 11.


Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl. 00:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?