Fjallskilastjórn Miðfirðinga

Fjallskilastjórn Miðfirðinga fjallskilastjórnar haldinn miðvikudaginn 8. júní 2022 kl. 09:00 Staðarbakka.

Fundarmenn

Pétur Hafsteinn Sigurvaldason, Valgerður Kristjánsdóttir, Þórarinn Óli Rafnsson og Sigríður Ólafsdóttir ráðunautur.

Fundargerð ritaði: Valgerður Kristjánsdóttir

Dagskrá: Skoða ástand gróðurs á afrétt Miðfirðinga. Farið var í Vesturárdal. Sigríður kom með sólina með sér úr Víðidalnum. Hrís sprungið út og gróður kominn vel af stað.

Ákveðið að leyfa upprekstur sauðfjár frá og með 10. Júní föstudag.

Upprekstur hrossa leyfður frá og með fimmtudeginum 7. júlí. Mælist fjallskilastjórn til að fullorðin hross fylgi tryppum á heiðina.

Nefnd skipti með sér verkum.

Þórarinn kjörinn formaður, Valgerður ritari og Pétur meðstjórnandi.

Rætt um girðingar og viðhald þeirra.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið klukkan 12:00

Var efnið á síðunni hjálplegt?