Fjallskilastjórn Hrútfirðinga að austan

Fjallskilastjórn Hrútfirðinga að austan fjallskilastjórnar haldinn mánudaginn 8. ágúst 2022 kl. 20:30 Bálkastöðum .

Fundarmenn

Guðmundur Ísfeld 
Brynjar Æ. Ottesen
Jón Kr. Sæmundsson

Fundargerð ritaði: Guðmundur Ísfeld

Stjórn hittist til að ræða fjallskilaseðil og uppfæra. Mat á fjallskilaskyldri vinnu hækkuð um 5% og akstur um 10% vegna verðhækkana.

Göngur verði 1. Sept. og réttað verði 3. Sept. Laugardag.

Önnur leit fari fram laugardaginn 10. september. Nema veður hamli.

Fyrri heimalandasmölun skal fara fram 24. september og skilarétt

sunnudaginn 25. september kl. 10:00 – Seinni laugardaginn 8. Október.

Formanni falið að klára setja upp og senda fjallskilaseðil.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið klukkan 23.15

Fjallskilaseðill 2022

Á fundi stjórnar Fjallskiladeildar Hrútfirðinga þann 8. ágúst 2022 var samþykkt að í haust verði fjallskil á svæðinu með eftirfarandi hætti

Fyrsta leit fari fram fimmtudaginn 1. og föstudaginn 2 september og réttað verði að morgni laugardagsins 3. september. Leit skal haga þannig að allt svæðið, þ.e. bæði heiðin og Meladalur verði smöluð á sama tíma.

Kl. 12:00 að morgni fimmtud. 1. september skulu 7 gangnamenn vera ferðafærir við Bláhæð.

Verkefni þeirra verður að smala fremsta hluta heiðarinnar eins langt og tími leyfir.

Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Eyjanes 1. - Reykir II 2. - Akurbrekka 1. –

Þóroddsstaðir 1. - Bálkastaðir I 2.

Að kvöldi fimmtudagsins 1. september skulu vera mættir 20 gangnamenn í Skútaskála. Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Eyjanes 2. - Reykir II 3. - Akurbrekka 3. - Þóroddsstaðir 3. - Brautarholt 1. –

Hvalshöfði 1. - Bálkastaðir I 5. - Hrútatunga 2.

Að morgni föstudagsins 2. september kl. 8.00 skulu vera mættir 5 gangnamenn við Bláhæð. Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Reykir II 2. - Akurbrekka 1. – Þóroddsstaðir 1. – Bálkastaðir I 1.

 

Fjallkóngur í 1. leit er Þorsteinn á Reykjum.

 

Réttarstörf hefjast kl. 9.00 laugardaginn 3. september.

 

Réttarstjóri í Hrútatungurétt verði Guðmundur á Jaðri .

Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Matthildar Hjálmarsdóttur.

 

Skilamaður í Miðfjarðarrétt verði Ásgeir í Brautarholti.

Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt Brautarholtsbúið.

 

Kerra fram að hliði að austan, Þóroddstaðabúið.

Æskilegt er að leitarmenn séu klæddir litsterkum utanyfirfötum á meðan leit stendur og noti viðeigandi öryggishjálma/búnað. Munið eftir skærlitu vestunum.

 

Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki Fjallkóngs.

 

Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá

hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.

Leitarmenn eru minntir á að leitum er ekki lokið fyrr en allt

safnið er komið inn í safngirðingu!

Önnur leit fari fram laugardaginn 10. september.

Nema veður hamli. Gangnamenn skulu vera ferðafærir kl. 8.30 við Leirhnjúk.

Eftirtalin bú leggi til gangnamenn, alls 15, þar af 3 á Meladal:

Tannstaðabakki 1. - Eyjanes 1. - Reykir II 2. - Akurbrekka 2. - Þóroddsstaðir 1. - Brautarholt 1. –

Bálkastaðir I 3. - Hrútatunga 1.

Á Meladal: Reykir II 1. - Þóroddsstaðir 1. - Bálkastaðir I 1.

 

Fjallkóngur í 2. leit verði Þorsteinn á Reykjum.

 

Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit: Búið á Reykjum II.

 

Akstur á fé úr Dæld í annari leit: Hrútatungubúið.

 

Heimalandasmalanir verði tvær. Sú fyrri fari fram laugardaginn 24. september og

skilarétt fari fram sunnudaginn 25. september og hefjist kl. 10.00

 

Réttarstjóri í Skilarétt verði Guðmundur á Jaðri .

 

Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Matthildar Hjálmarsdóttur.

 

Skilamaður í skilarétt Miðfirðinga verði Gunnar á Þóroddsstöðum.

 

Akstur á fé úr skilarétt Þóroddstaðabúið.

Seinni heimalandasmölun fari fram laugardaginn 8. október

og segi menn til fjár er fram kemur þá.

 

Fjallskilastjórn Hrútfirðinga

Var efnið á síðunni hjálplegt?