Fjallskilastjórn fyrrum Bæjarhrepps

Fjallskilastjórn fyrrum Bæjarhrepps fjallskilastjórnar haldinn fimmtudaginn 16. ágúst 2018 kl. 16:00 Kjörseyri.

Fundarmenn

Ingimar Sigurðsson formaður 


Hannes Hilmarsson 


Sigrún Waage 

Fundargerð ritaði: Ingimar Sigurðsson

Farið var yfir leitarseðil og helstu atriði uppfærð í samræmi við nýjustu upplýsingar.

Samþykkt var að fjallskil verði óbreytt frá fyrra ári og séu því á vetrarfóðraða kind kr 88. Einnig var samþykkt að greiðslur til jöfnunar fjallskila verði óbreytt kr 5700

Samkvæmt fjallskilareglugerð Húnaþings vestra skal réttað í Hvalsárrétt laugardaginn 15. september og Kvíslarland verður leitað föstudaginn 14. september.

Önnur leit verður laugardaginn 29. september.

Réttað verður í Hvalsárrétt sunnudaginn 30. september kl 13.00

Formanni falið að ganga frá leitarseðli og koma honum til dreifingar.

 

Hvalsárrétt er í góðu standi og þarf ekki að huga að neinu viðhaldi á þessu ári.

 

Safngirðingu þarf að fara yfir og endurnýja að hluta, formanni falið að tala við girðingaverktaka.

 

Ekkert fjármagn kom í viðhald vega á svæðinu árin 2017 og 2018. Fjallskilastjórn vonast til að breyting verði þar á árið 2019.

 

 

 

 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl 16.55

 

Ingimar Sigurðsson formaður (sign)


Hannes Hilmarsson (sign)


Sigrún Waage (sign) 

Var efnið á síðunni hjálplegt?