Byggðarráð

1299. fundur 16. nóvember 2026 kl. 14:00 - 15:06 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá
Formaður kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram.

Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs kom til fundar kl. 14:01.

1.Norðurbraut 32 - Fegrun svæðis og niðurrif

Málsnúmer 2602044Vakta málsnúmer

Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs kom til fundar við byggðarráð og fór yfir tilboð sem bárust í niðurrif eigna á steypustöðvarreit við Norðurbraut.
Ingimar vék af fundi kl. 14:20.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.

2.Húsnæðisáætlun 2027

Málsnúmer 2610089Vakta málsnúmer

Minnisblað sveitarstjóra um forsendur húsnæðisáætlunar 2027-2036 lagt fram til umræðu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða þær forsendur sem fram koma í minnisblaðinu og felur sveitarstjóra að ljúka við gerð Húsnæðisáætlunar Húnaþings vestra fyrir árin 2027-2036.

3.Umsókn um almenna leiguíbúð

Málsnúmer 2611040Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Antons Scheel Birgissonar um leiguíbúð að Garðavegi 18.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlengingu leigusamnings til 6 mánaða, til 31. maí 2026.

4.Starfshópur um gerð aðalskipulags

Málsnúmer 2509085Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni N-lista um endurtilnefningu fulltrúa í starfshóp um gerð aðalskipulags.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að skipa Tómas Bergstein Arnarsson í starfshóp um gerð aðalskipulags í stað Magnúsar Vignis Eðvaldssonar.

5.Starfsmannamál

Málsnúmer 2611029Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

6.Hafnasambandsþing 2026

Málsnúmer 2611030Vakta málsnúmer

Fundargerð Hafnasambandsþings 2026 sem fram fór 22.-23. október lögð fram til kynningar. Einnig er lögð fram ályktun þingsins og skýrsla stjórnar Hafnasambands Íslands.

7.Samtök landbúnaðarsveitarfélaga - fundargerð stofnfundar og samþykktir

Málsnúmer 2611023Vakta málsnúmer

Fundargerð stofnfundar samtaka landbúnaðarsveitarfélaga sem fram fór 7. október 2026 lögð fram til kynningar ásamt samþykktum samtakanna.

8.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. október 2026 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:06.

Var efnið á síðunni hjálplegt?