|
1.
|
Erindisbréf nefnda og ráða - 2605065
|
| |
Erindisbréf skipulagsráðs sem samþykkt var af sveitarstjórn á 404. fundi hennar sem fram fór þann 11. júní 2026 lagt fram til kynningar. Einnig lagðar fram siðareglur sveitarstjórnar sem ná til starfa nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins.
|
| |
Skipulagsráð tekur fyrir kynningu á erindisbréfi ráðsins og siðareglum kjörinna fulltrúa Húnaþings vestra og tekur erindisbréf ráðsins og siðareglur til eftirbreytni í störfum sínum.
|
|
|
|
|
|
2.
|
Br. ASK-Tengivirki í landi Reykja-skipulags-matslýsing - 2606018
|
| |
Skipulags- og matslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og spennistöð í landi Reykja við Laugarbakka. Svæðið er í dag skilgreint sem landbúnaðarsvæði en fyrirhuguð uppbygging kallar á að landnotkun verði breytt í iðnaðarsvæði.
|
| |
Svæðið er í gildandi aðalskipulagi skilgreint sem landbúnaðarsvæði, en fyrirhuguð uppbygging kallar á að landnotkun verði breytt í iðnaðarsvæði. Samhliða aðalskipulagsbreytingu verður unnið nýtt deiliskipulag þar sem m.a. verður kveðið á um afmörkun lóða, byggingarreiti, aðkomu, lagnaleiðir, öryggissvæði, frágang og aðra skipulagsskilmála vegna mannvirkjanna.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að auglýsa og kynna skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og spennistöð í landi Reykja við Laugarbakka.
|
|
|
|
|
|
3.
|
Strengvæðing í Hrútafirði - tilkynning um framkvæmd - 2605052
|
| |
Fyrir liggur kynning frá RARIK vegna fyrirhugaðrar áframhaldandi strengvæðingar raforkudreifikerfis í Hrútafirði. Undanfarin ár hefur RARIK unnið að endurnýjun dreifikerfisins þar sem eldri loftlínur eru leystar af hólmi með jarðstrengjum, með það að markmiði að bæta afhendingaröryggi raforku, draga úr rekstrartruflunum og minnka sjónræn áhrif raflína.
|
| |
Fyrir liggur að framkvæmdaraðili hafi aflað nauðsynlegra umsagna og leyfa frá landeigendum, Vegagerðinni, Fiskistofu og Minjastofnun Íslands, eftir því sem við á.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd, enda verði unnið í samræmi við framlagða tilkynningu og meðfylgjandi gögn.
|
|
|
|
|
|
4.
|
Merkjalýsing, Staður - spennistöð - 2606078
|
| |
Merkjalýsing vegna stofnun nýrrar lóðar úr landi Staðar, landnúmer L144048, undir spennistöð í Hrútafirði. Ný lóð verður 20 m² að stærð og er skráð á fasteignina F2132852. Merkjalýsingin er lögð fram í samræmi við lög nr. 6/2021 um skráningu, merki og mat fasteigna og reglugerð nr. 160/2024 um merki fasteigna.
|
| |
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsinguna og stofnun 20.m² lóðar úr landi Staðar, landnúmer L144048, undir spennistöð í Hrútafirði, samkvæmt framlagðri merkjalýsingu.
|
|
|
|
|
|
5.
|
Merkjalýsing, Víðigerð - spennistöð - 2606077
|
| |
Merkjalýsing vegna stofnunar nýrrar lóðar undir spennistöð RARIK við Víðigerði. Um er að ræða 40 m² lóð sem stofnuð verður úr landi Auðunnarstaða, landnúmer L144596, í Húnaþingi vestra. Lóðin er ætluð undir spennistöð sem er hluti af dreifikerfi RARIK.
|
| |
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsingu vegna stofnunar 40 m² lóðar úr landi Auðunnarstaða, landnúmer L144596, undir spennistöð, samkvæmt framlagðri merkjalýsingu og meðfylgjandi uppdrætti.
|
|
|
|
|
|
6.
|
Umsókn um byggingarlóð - 2605014
|
| |
Sjótækni ehf. hefur óskað eftir lóðum undir atvinnuhúsnæði við Hafnarbraut 9 og 11 á Hvammstanga fyrir þaravinnslu og jafnframt óskað eftir breytingu á deiliskipulagi svæðisins svo fyrirhuguð uppbygging geti rúmast innan skipulagsskilmála.
Sveitarstjórn hefur þegar samþykkt að úthluta Sjótækni ehf. lóðunum Hafnarbraut 9 og 11 í samræmi við skilmála lóðaúthlutana og vísað beiðni um breytingu á deiliskipulagi svæðisins til skipulags- og umhverfisráðs. Málið er því lagt fyrir ráðið til umfjöllunar um næstu skref í skipulagsferlinu.
|
| |
Skipulagsráð tekur til umfjöllunar erindi sveitarstjórnar vegna beiðni Sjótækni ehf. um breytingu á deiliskipulagi við Hafnarbraut á Hvammstanga, í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu atvinnuhúsnæðis fyrir þaravinnslu á lóðunum Hafnarbraut 9 og 11.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010, kalla eftir nauðsynlegum gögnum frá umsækjanda og undirbúa tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðisins til frekari umfjöllunar ráðsins.
|
|
|
|
|
|
Fríða Marý vék af fundi kl 14:45.
|
|
7.
|
Bakkatún 9, ósk um afnotarétt - 2606052
|
| |
Óskað er eftir afnotarétti af svæði norðan við Bakkatúni 9 í Húnaþingi vestra. Samkvæmt fyrirliggjandi teikningum er gert ráð fyrir göngustíg á umræddu svæði, en umsækjendur óska eftir að nýta svæðið, að hluta eða í heild, sem bílastæði fyrir fasteignina.
|
| |
Skipulagsráð hafnar erindinu. Ráðið telur ekki rétt að heimila nýtingu svæðisins sem bílastæði þar sem svæðið er samkvæmt fyrirliggjandi skipulagsgögnum ætlað fyrir göngustíg og hluta af samgöngu- og útivistartengingu innan svæðisins.
|
|
Fríða Marý kom aftur inn á fund kl 15:10
|
|
|
|
|
|
Tómas vék af fundi kl 15:19
|
|
8.
|
DSK-Nestún-Hvammstanga - 2607001
|
| |
Húnaþing vestra hefur hafið vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir Nestún. Með gerð deiliskipulagsins er markmiðið að móta heildstæða og skýra umgjörð um framtíðarnýtingu svæðisins, þar sem tekið verður tillit til staðhátta, aðliggjandi byggðar. Við gerð deiliskipulagsins verður lögð áhersla á að skipulagið samræmist gildandi aðalskipulagi, styðji við markmið sveitarfélagsins og skapi traustan grundvöll fyrir frekari hönnun, leyfisveitingar og framkvæmdir á svæðinu.
Fyrirliggjandi skipulagslýsing er unnin í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er henni ætlað að kynna forsendur, markmið og áherslur deiliskipulagsvinnunnar.
|
| |
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að skipulagslýsingin verði auglýst og kynnt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnaraðilum, íbúum og öðrum hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum áður en tillaga að deiliskipulagi verður fullmótuð.
|
|
|
|
|
|
9.
|
Dsk-Borðeyri - 2607002
|
| |
Skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar nýs deiliskipulags fyrir svæði við Borðeyri í Hrútafirði. Skipulagssvæðið tekur til strand- og hafnarsvæðis við Borðeyri og er um 28. ha að stærð samkvæmt fyrirliggjandi lýsingu. Markmið skipulagsvinnunnar er að móta heildstæða stefnu fyrir framtíðaruppbyggingu á svæðinu, bæta nýtingu þess og skapa skýran ramma utan um fyrirhugaðar framkvæmdir, mannvirkjagerð og aðkomu.
Fyrirliggjandi skipulagslýsing er unnin í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er henni ætlað að kynna forsendur, markmið og áherslur deiliskipulagsvinnunnar.
|
| |
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að skipulagslýsingin verði auglýst og kynnt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnaraðilum, íbúum og öðrum hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum áður en tillaga að deiliskipulagi verður fullmótuð.
|
|
Tómas kom aftur til fundar kl 15:34
|
|
|
|
|