Upplýsingafundur fyrir eldri borgara og aðstandendur

Upplýsingafundur fyrir eldri borgara og aðstandendur

Snældan heimaþjónusta býður til upplýsingafundar fyrir eldri borgara og aðstandendur þeirra miðvikudaginn 18. nóvember kl. 15:00 - 17:00 í safnaðarheimilinu á Hvammstanga.

Á dagskrá eru:

  • Kynning á þjónustu fyrir eldri borgara í Húnaþingi vestra og stöðu þróunarverkefnis um samþætta heimaþjónustu.
  • Yfirferð yfir niðurstöður könnunarinnar um einmanaleika eldra fólks og spjall um hvað við getum gert til að sporna við því.
  • Umboðsmaður Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga upplýsir um almenn réttindi, umsóknarferla og ellilífeyrisgreiðslur.

Boðið verður upp á kaffi og kleinur.

Öll velkomin!

Var efnið á síðunni hjálplegt?