SJÓMANNADAGURINN 7. JÚNÍ 2026
KAFFISALA - VEISLUKAFFI
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra verður með kaffisölu eftir messu á sjómannadaginn 7. júní í Samfélagsmiðstöðinni GLAUMBÆ. Í boði verður glæsilegt kaffihlaðborð að hætti félaga. Það er engin verðbólga eða sjálfvirkar hækkanir hjá FEB og þú ferð eins margar ferðir og þú vilt á kaffihlaðborð og verð er það sama og í fyrra:
16 ára og eldri 3.000 kr
7 ára – 15 ára 1.000 kr
6 ára og yngri ókeypis
Enginn posi verður á staðnum, en greiða má með reiðufé eða leggja inn á reikning félagsins.
GLAUMBÆ FORMLEGA GEFIÐ NAFN
Um klukkan 15.00 gefur Dóra Eðvaldsdóttir Glaumbæ formlega nafn og viðstaddir syngja til heiðurs “Glaumbæ”
LISTSÝNING Á VERKUM FÉLAGA “OKKUR ERU ALLIR VEGIR FÆRIR”
Í Glaumbæ hefur verið komið fyrir sýningu á verkum “fagfólks” í hópi eldri borgara, en það er sýning á verkum sem félagar hafa unnið eftir að hafa sótt námskeið á vegum félagsins. Sýningin nefnist: “OKKUR ERU ALLIR VEGIR FÆRIR” Það er öllum velkomnið að skoða sýninguna án endurgjalds. Sjón er sögu ríkari.
Skemmtum okkur og kýlum vömb á Sjómannadaginn
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra