Halló-Vín Hlöðunnar og Sjávarborgar

🎃 HALLÓ-VÍN HLÖÐUNNAR OG SJÁVARBORGAR! 👻
Það er komið að því að vekja draugana til lífsins! Hlaðan og Sjávarborg taka höndum saman og bjóða upp á draugalega skemmtilegt Halloween-kvöld með kokteilum, tónlist, búningakeppni og ógnvekjandi stemningu!
FYRST Á HLÖÐUNNI – FRÁ KL. 20:00
Hlaðan ríður á vaðið með fjöri og hryllingi!
* Happy Hour frá kl. 20:00–22:00
* Halloween-kokteill og ógnvekjandi stemning
SÍÐAN Á SJÁVARBORG!
Fjörið heldur áfram á Sjávarborg þar sem boðið verður upp á:
* Halloween-hamborgara og kokteila
* DJ sem þeytir skífum frá kl. 23:00
* Opið til kl. 02:00
DRAUGALEG LEIÐ MILLI STAÐA
Þorir þú að leggja leið þína frá Hlöðunni að Sjávarborg? Draugaleg leið bíður þeirra hugrökku og leiðir gesti upp á svalir Sjávarborgar. En passaðu þig – þú veist aldrei hvað leynist á leiðinni!
🏆 BÚNINGAKEPPNI MEÐ VEGLEGUM VERÐLAUNUM!
Nú er um að gera að leggja metnað í búninginn! Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana, vegleg verðlaun!
Úrslit verða tilkynnt á Sjávarborg kl. 00:15.
Taktu vinahópinn með, farðu í þinn allra óhugnanlegasta búning og vertu með okkur á kvöldi sem verður hrikalega skemmtilegt!
Sjáumst á Halló-víni – ef þú þorir!

 

(2) Halló-Vín Hlöðunnar og Sjávarborgar | Facebook

Var efnið á síðunni hjálplegt?