Góð heilsa á efri árum Fræðsla fyrir félag eldri borgara í Húnaþingi vestra

Góð heilsa á efri árum

Fræðsla fyrir félag eldri borgara í Húnaþingi vestra
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur mun halda fyrirlestur á mánudaginn 6.október kl.14.30 í Samfélagsmiðstöðinnni í Félagsheimilinu á Hvammstanga

Það er mikilvægt að stuðla að heilsu alla ævi og jafnvel enn mikilvægara á efri árum, til að stuðla að lífsgæðum ævina á enda.

Á fyrirlestrinum verður farið í:

  • Mikilvægi næringar á öllum aldri
  • Áhersluatriði í næringu með auknum aldri
  • Mikilvægi góðrar meltingar
  • Tengsl lyfja við upptöku ýmissa næringarefna
  • Leiðir til að draga úr aldurstengdri vöðvarýrnun

 

 

Fyrirlesari er Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur og einkaþjálfari. Hann starfar m.a. á Heilsustofnun í Hveragerði og rekur fræðslu í gegnum Heilsugeirann.

Hægt er að fylgjast með Geir Gunnari á:
www.heilsugeirinn.is
@Heilsugeirinn á instagram og facebook

Slagorð Heilsugeirans er:

„Lífið verðlaunar þá sem gefast ekki upp“

Var efnið á síðunni hjálplegt?