Alzheimersamtökin með fræðslu á Hvammstanga
Alzheimersamtökin bjóða til fræðslu á Hvammstanga mánudaginn 9. mars næstkomandi. Þar verður starf samtakanna kynnt og fjallað um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur. Fræðslufundurinn verður haldinn í samstarfi við Félag eldri borgara í Samfélagsmiðstöðinni. Hann er opinn öllum áhugasömum og aðgangur er ókeypis.
Meiri þekking og minni fordómar
Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Umræða um heilabilun er einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu og þess vegna leggja samtökin mikla áherslu á að fræða sem flesta.
Fræðslustjóri og Alzheimertenglar
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna sér um fræðsluna í gegnum fjarfund. Á staðnum verða nýir Alzheimertenglar í Húnaþingi vestra þær Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Sigurbjörg Þorsteinsdóttir.
Öll velkomin – aðgangur ókeypis
Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Alzheimersamtökin hvetja alla áhugasama til að mæta, hvort sem um er að ræða einstaklinga með heilabilun, aðstandendur, fagfólk eða aðra áhugasama.
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna
thelma@alzheimer.is, sími 86 86 056