Að sækja um styrk. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra

Ertu með hugmynd að verkefni sem gæti eflt atvinnulíf eða menningu á Norðurlandi vestra?
SSNV býður til kynningarfundar um Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra. Á fundinum verður farið yfir styrkmöguleika sjóðsins, umsóknarferlið og góð ráð við gerð umsókna. Einnig gefst tækifæri til að spyrja spurninga og ræða verkefnahugmyndir.
Við hvetjum bæði nýja og reynda umsækjendur til að mæta og kynna sér tækifærin. Gott er að hefja undirbúning tímanlega og starfsfólk SSNV er til staðar til að aðstoða við umsóknarvinnuna.
Öll velkomin!

 

Að sækja um styrk. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra | Facebook

Var efnið á síðunni hjálplegt?