Vinnustofa 20. mars á Blönduósi - öruggara Norðurland

Vinnustofa 20. mars á Blönduósi - öruggara Norðurland

Viltu taka þátt í að móta Öruggra Norðurland vestra með öllum helstu hagsmunaaðilum á svæðinu?

Öruggara Norðurland vestra er svæðisbundið samráð gegn ofbeldi, öðrum afbrotum og til að stuðla að bættri þjónustu fyrir jaðarsetta hópa.

Á vinnustofunni verða fjölmörg erindi um málefni barna og ungmenna, jaðarsetta hópa, þjónustu við fólk með geðrænan vanda sem og ofbeldi í nánum samböndum.

Erindum er fylgt eftir með hópavinnu á borðum þar sem hver og einn kemur sínum sjónarmiðum á framfæri. Framkvæmdateymi um Öruggara Norðurland vinnur svo áfram úr þeim tillögum sem fram koma og móta átaksverkefni í hverjum málaflokki til að vinna að.

https://forms.office.com/e/RDaDG5HnAc?origin=lprLink

Var efnið á síðunni hjálplegt?