Vinnuskóli og sláttuhópur sumarið 2018

Vinnuskóli og sláttuhópur sumarið 2018

Húnaþing vestra mun starfrækja vinnuskóla í sumar fyrir 13-17 ára ungmenni.
Vinnuskólinn hefst miðvikudaginn 6. júní nk. Vinnutími er frá klukkan 8:30-12:00 árdegis og 13:00-16:00 síðdegis, frá mánudegi til fimmtudags, á föstudögum lýkur vinnu kl. 12:00. Verkbækistöð verður í vinnuskólahúsinu að Norðurbraut 14, Hvammstanga. Mögulega verður starfsstöð á Borðeyri, með samskonar sniði og fyrri ár.

Aldur: Ungmenni fædd árið 2002 (10.b)
Vinnutímabil:
8-10 vikur.
Laun: tímalaun m/orlofi 838,00 kr.
Hafa einnig kost á að starfa í sláttuhóp þar sem greitt er eftir kjarasamningi.

Aldur: Ungmenni fædd árið 2003 (9.b)
Vinnutímabil:
7 vikur.
Laun: tímalaun m/orlofi 683,00 kr.

Aldur: Ungmenni fædd árið 2004 (8.b)
Vinnutímabil:
5 vikur.
Laun: tímalaun m/orlofi: 580,00 kr.

Aldur: Ungmenni fædd árið 2005 (7.b)
Vinnutímabil:
4 vikur. (hálfan daginn)
Laun: tímalaun m/orlofi: 486,00 kr.

Ungmenni sem hafa áhuga á að aðstoða við frístundastarf fyrir börn í grunnskólanum, láti vita af því við innritun.
16 ára ungmenni geta valið um að starfa í sláttuhópi.
Mikilvægt er að það komi fram ef sé um ofnæmi, sérþarfir eða einhverskonar frákvik að ræða, sem gott væri fyrir starfsfólk vinnuskólans að vita.

Innritun er hafin og fer fram HÉR

Sláttuhópur 2018 17 ára og eldri

Sláttuhópur - Sumarvinna við grasslátt og almenn garðyrkjustörf. 17 ára og eldri. (16 ára)
Vinnan felst aðallega í því að vinna með sláttuvélar og vélarorf á opnum svæðum og stofnanalóðum sveitarfélagsins undir stjórn flokksstjóra. Þá er einnig unnið við almenn garðyrkjustörf og annað tilfallandi, ef svo ber undir. 
Vinnutímabil: 8-10 vikur.
Vinnutími: 8:15-16:15 alla virka daga.
Laun: eftir kjarasamningi. (Frekari upplýsingar hjá launafulltrúa á skrifstofu Húnaþings vestra í ráðhúsi)

Krafist er stundvísi, ástundunar og reglusemi. 
Sótt er um starf í sláttuhóp HÉR fyrir 20. maí 2018.

Mikilvægt er að ungmenni og foreldrar/forráðamenn kynni sér vel reglur vinnuskólans og aðrar hagnýtar upplýsingar um starfið og starfsfyrirkomulagið,, það má finna hér: https://www.hunathing.is/is/thjonusta/umhverfismal/vinnuskoli

Ína Björk Ársælsdóttir
Umhverfisstjóri Húnaþings vestra
Sími:
455-2400
Netfang:
umhverfisstjori@hunathing.is

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?