Viðhald girðinga meðfram vegum - tilkynna.

Viðhald girðinga meðfram vegum - tilkynna.
Landeigendur eru minntir á að tilkynna til skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400 eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is þegar viðhaldi girðinga með stofn- og tengivegum er lokið eða fyrir 1. október nk. sbr. reglugerðum nr. 930/2012 og breytingareglugerð 825/2017. 
 
  • Eftir 1. október nk. mun Vegagerð ríkisins ásamt fulltrúa sveitarfélagsins taka út girðingar hjá þeim landeigendum sem tilkynna að girðingar þeirra séu í lagi.
  • Þeir landeigendur sem telja sig uppfylla skilyrði reglugerðarinnar eru beðnir að tilkynna viðhald sitt á girðingum til sveitarfélagsins fyrir 1. október nk. á netfangið: skrifstofa@hunathing.is eða í síma 455 2400. Gefa skal upp nafn, kennitölu og reiknisnúmer þess sem móttekur greiðslu.
Samkv. 2 gr. (breytingar)reglugerðar nr. 825/2017 um girðingar meðfram vegum;
 
Viðhaldskostnaður girðinga með stofn- og tengivegum greiðist að jöfnu af Vegagerðinni og land-eiganda í samræmi við ákvæði þessarar greinar.
 
Innan mánaðar frá því að landeigandi hefur lokið árlegu viðhaldi girðinga með stofn- og tengivegum skal hann tilkynna það til sveitarstjórnar og viðkomandi þjónustustöðvar Vegagerðarinnar og óska eftir greiðslu á kostnaðarhlutdeild veghaldara. Vegagerðin skal greiða landeiganda sem svarar helmingi af áætluðum viðhaldskostnaði girðinga eins og hann er skilgreindur í 4. mgr. Uppgjör vegna kostnaðarþátttöku Vegagerðarinnar skal fara fram innan mánaðar frá því að tilkynning berst Vegagerðinni eða frá úttekt skv. 3. mgr. fari hún fram.
 
Vegagerðinni er heimilt að gera að skilyrði kostnaðarþátttöku að úttekt fari fram á viðhaldi girðinga. Komi í ljós við úttekt að viðhaldi hefur ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti að mati Vegagerðarinnar eða sveitarstjórnar er Vegagerðinni heimilt að synja um greiðslu. Tilkynni landeigandi ekki fyrir 1. október að árlegu viðhaldi sé lokið er Vegagerðinni heimilt að synja um greiðslu helmings viðhaldskostnaðar þess árs.
 
Við uppgjör vegna kostnaðarþátttöku Vegagerðarinnar í viðhaldskostnaði girðinga meðfram stofn- og tengivegum skal við það miðað að árlegur viðhaldskostnaður nemi 4% af stofnkostnaði girðinga, sbr. 3. gr. Þó skal miða við að viðhaldskostnaður geti numið allt að 7% af stofnkostnaði í erfiðu girðinga¬landi eða vegna snjóþyngsla, sbr. nánari ákvæði í viðauka reglugerðarinnar.
 
Var efnið á síðunni hjálplegt?